Entry: Atvinnuleit June 25, 2008



Atvinnuleit er erfitt fyrirbæri. Ég er búin að gefast upp. Er bara hætt að leita að kennaravinnu. Ég verð bara á leikskólanum að skipta á kúkableyjum og hugga organdi börn alla vega næsta árið.

Ég fékk í gær loksins viðtal í skóla. Það var í Hellerup skóla, og ég var virkilega farin að hlakka til að fara í viðtalið. Leist vel á skólann út frá heimasíðunni, staðsetningin er betri en flestir aðrir vinnustaðir sem mér hefur staðið til boða, og ég var með miklar væntingar og vonaði innilega að ég fengi vinnuna.

Áður en ég lagði af stað í viðtalið fékk ég svo símtal um að ég þyrfti ekki að mæta, það væri búið að ráða í stöðuna. Þvílík höfnun, þau nenntu ekki einu sinni að ræða við mig áður en þau tækju lokaákvörðun. Kom einhver súperdúper kennari inn til þeirra og var ráðinn á staðnum eða hvað??
Hvert bréf sem segir að maður hafi því miður ekki fengið viðtal, eða að þegar sé búið að ráða í stöðuna, er erfitt. En kannski tek ég þessu allt of persónulega...

Ég á líka ábyggilega eftir að venjast þessu á leikskólanum, og ég ræði launin á morgun, svo vonandi verður það bara gott. Svo er þetta nú ekki slæm æfing áður en ég þarf að sinna mínum eigin börnum:)

En ég er farin að læra undir dönskupróf sem ég er að fara í eftir 3 tíma. Eins gott að standa sig í dönskunni svo ég fái einhvern tímann vinnu.

Hilsen

   1 comments

mamma
June 26, 2008   10:32 AM PDT
 
vonandi hefur gengið vel í prófinu.
knús frá okkur

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments