|
En svo ætla ég líka að reyna að fara að komast að því hvort ég fái e-ð meira í skólanum í Ballerup. Ég var á sumargleði þar í gær með starfsfólkinu og það var svo gaman að mig langar ekki að hætta:) En annars er ekkert nýtt. Er bara að deyja úr leti þessa dagana og hef verið að stunda tölvuleikinn Luxor stíft síðustu daga, sem bitnar á dönskulærdómi. En ég er einmitt að fara í dönskupróf á mánudag og miðvikudag, og byrja svo næsta námskeið strax í vikunni þar á eftir. En já sjálfsstjórnin er sem sagt enginn og haga ég mér eins og það að klára leikinn sé það mikilvægasta í lífi mínu. Takk mamma og pabbi, ég veit þetta kemur frá ykkur;) Best að fara að halda áfram, ég frétti nefnilega að pabbi væri kominn lengra en ég í leiknum, og það gengur auðvitað ekki! hilsen |
| Leave a Comment: |