|
Í gær héldum við svo upp á 17. júní með þjóðlegum hætti. Borðuðum upphitaðan ora fiskibúðing úr dós í hádeginu, og mjólkurgraut með slátri í kvöldmatinn. ummmm. Annars var ég svo þreytt eftir ferðalagið, og eftir að hafa farið full seint að sofa á mánudag miðað við hvað ég vaknaði snemma, svo það varð eitthvað lítið úr deginum hjá okkur. Nema að ég fékk boð í atvinnuviðtal á föstudag, í vinnu sem er svipuð þeirri sem ég var í í Oxford. Ef ég fæ vinnuna verð ég kontakt-persóna fyrir einn eða fleiri vistmann (eða konu) í íbúðasamfélagi fyrir fólk með andleg vandamal. Deildin sem ég verð þá við sér um sjálfsmorðslanganir og að vinna úr misnotkun. Ég er samt alveg á báðum áttum hvort ég eigi að fara aftur út í eitthvað svona. Þetta er ótrúlega gefandi, og ég er góð í svona vinnu, en þetta getur verið svo ótrúlega erfitt andlega suma daga. En ég held að ef mér verði boðin vinna og sæmileg laun taki ég henni. En svo er Bobbý að fara til Grænlands á morgun:( Mér finnst hann alltaf vera nýkomin eða alveg að fara, og er að breytast í leiðinlegustu manneskju í heimi sem vill bara vera alein með kærastanum sínum heima að kúra. En þetta hlýtur að fara að venjast. Svo er dönskupróf hjá mér í dag, á mánudaginn og næsta miðvikudag. Og ég sem hélt ég væri hætt að læra!! En ég ætla að leggjast aftur upp í rúm fyrst nemandi minn ákvað að mæta ekki í dag. Hasta la pronto! Hulda |
| Hulda June 19, 2008 02:43 PM PDT Já þetta var mjög þjóðlegur og góður dagur:) En já takk sömuleiðis bara fyrir sendinguna í janúar;) | ||
| mamma June 19, 2008 10:34 AM PDT Takk fyrir síðast :)........ Þjóðlegur 17. júní hjá ykkur............. vonandi gegnur vel í viðtalinu á morgun hjá þér. takk fyrir sendinguna í gær, við verðum í bandi | ||
| Leave a Comment: |