|
En það verður að hafa það, ég kem til Íslands á morgun, og útskrifast á laugardaginn og fer svo aftur út á mánudaginn. Svo fæ ég vonandi að heyra eitthvað meira um vinnur í næstu viku. En reyndar á að loka öllum leikskólum í næstu viku ef ekki verður búið að leysa úr kjarabaráttu leikskólakennara, svo ég fæ ekki þá vinnu fyrr en þeir opna aftur í fyrsta lagi:( En skólastjórinn þar sem ég vinn er líka að bíða eftir svörum frá sveitafélaginu hvort hann megi fastráða fleiri við skólann, og þá fæ ég líklega stöðu þar. En hann vissi hvorki hvenær svör bærust eða hver þau yrðu svo hann sagði mér að taka vinnu sem mér byðist þangað til, og svo gæti ég þá bara sagt upp ef mig langaði meira að vinna hjá þeim:) En svo er ég líka að fara á sumargleði kennara í skólanum í næstu viku, ekki seinna vænna að kynnast liðinu ef ég verð núþegar hætt þegar ég mæti á Sommer frokost. En jæja það er best að fara að gera eitthvað gáfulegra en að hanga í tölvunni. Sjáumst heima, eða heyrumst! Hilsen Hulda |
| Kristín María June 12, 2008 06:19 PM PDT Uff frekar pirrandi, sérstaklega þar sem hún er nú ekki að gera þetta í fyrsta skipti. En núna ertu örugglega komin heim, skemmtu þér vel um helgina og vertu pæja :) | ||
| Leave a Comment: |