|
En þetta verður líka gleðidagur fyrir mig! Bobbý minn er að koma heim og fer ekki út til Grænlands aftur fyrr en eftir tæpan mánuð! JEIJ JEIJ JEIJ! Þvílík hamingja á þessu heimili í dag! En annars fór ég í dönskuskólann í gær og leiddist pínu meðan hinir nemendurnir voru að glósa selvom, elever og bagved og önnur orð sem ég lærði líklega í 7. bekk. En það var farið vel í nokkur grunn framburðaratriði sem ég hafði aldrei lært, eða man alla vega ekki eftir að hafa lært, og mér fannst ég læra helling af því. Var að lesa upphátt fyrir sjálfa mig áðan (alltaf að æfa framburðinn sko) og fannst mér bara hafa farið fram eftir fyrsta daginn. Enda er ég búin að læra að láta hálfa setningu hljóma sem eitt langt hljóð... En ég veit ekki alveg hvernig er með þessa vinnu mína, ég er búin að vera 2 vikur í Danmörku í dag, og búin að kenna einn dag, því þegar nemandinn minn er ekki í prófi er hún heima að læra fyrir próf eða heima veik! Verst að vera á tímakaupi núna, og fá þá ekkert borgað. En ég hef þá bara meiri tíma til að baka og gera kósý áður en Bobbý minn mætir í kvöld:) Hasta la vista |
| Leave a Comment: |