Entry: - May 17, 2008



Nú er loksins allt að gerast.

  • Ég byrja á dönskunámskeiðinu á mánudaginn
  • Ég er búin að sækja um vinnu í 5 skólum, einum leikskóla, og sumar/aukavinnu á veitingastað.
  • Ég er búin að fá staðfestingu frá einum skóla að umsókn sé móttekin, og mail frá veitingastaðnum um að við getum rætt um atvinnuviðtal ef ég vilji hlutastarf.
  • Ég heyrði stelpu í gær tala um að hafa keypt sér hjól á 1000kr svo ég spurði hvar og er á leiðinni þangað að kaupa mér hjól.
  • Ég er búin að fá þriðju einkunn, það var fyrir íslensku og var 8. Nú er það bara heimspekin og lokaritgerðin sem ég á eftir að fá út úr.
  • Bobbý kemur líklega heim í næstu viku.
  • Mamma og pabbi koma í heimsókn eftir viku.
  • Svo er ég bara á fullu að skoða fasteignablöðin þegar ég er ekki í sólbaði eða að sækja um vinnur.

Þannig að eftir ár ættum við að vera bæði í góðri fastri vinnu, í eigin húsnæði og þá á bara eftir að unga út börnum í öll aukaherbergin sem ég vil hafa:)

En ég er farin að kaupa mér hjól.

Hilsen

   1 comments

mamma
May 17, 2008   10:38 PM PDT
 
til hamingju með einkunnargjöfina
tilhlökkunin er orðin mikil hér hjá okkur núna er bara vika í að við gerum innrás hjá ykkur
KNÚS

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments