|
Svo er ég að fara með fyrstu umsóknina mína í póst á eftir, KM var svo góð að lesa hana yfir hjá mér í gær til að laga málfræði og stafsetningarvillur. Enda lítið dönskusjálfsálit eftir núna, eftir að hafa farið í heimsókn í dönskuskólann. Ég fékk leiðindakerlingu sem var með stæla bara. Nennti ekkert að tala við mig og skellti mér í skriflegt próf sem ég var ekkert undirbúin að fara í. Munnlega hliðin mín er betri í dönsku, eins og öllum öðrum tungumálum þegar velja þarf um að skrifa án orðabókar eða tala. En kella var ekkert mikið að nenna að tala við mig, braut mig alveg niður með því að svara mér alltaf á ensku, vera mjög óvirkur hlustandi og sitja og strika yfir allt prófið mitt með rauðu meðan ég átti að tala. Þannig að ég stóð mig ekki neitt frábærlega. Hún setti mig svo á byrjenda námskeið fyrir aðeins lengra komna, en ég var ekki mjög sátt. Þá sagði hún bara: Æji það er svo erfitt að finna rétt námskeið fyrir ykkur íslendingana, þú hækkar ábyggilega strax upp um námskeið... Af hverju þá ekki bara að setja mig strax á hærra námskeið og láta mig rembast þar?? ég hefði verið meira til í það. Tími hvorki tímanum mínum né peningum í það að sitja á námskeiði þar sem ég þarf að læra að segja hvað ég heiti!! en kannski er ég að gera of mikið veður út af þessu. Kannski er þetta námskeið bara alveg fullkomið fyrir mig. Verð bara að sjá. En svo er skólastjórinn í skólanum sem ég er að vinna í búinn að biðja um viðtal við mig á þriðjudaginn. Ég er voða spennt að vita hvað hann vilji ræða um, hvort það sé boð um áframhaldandi vinnu, tilkynning um að því miður hafi þau ekki meira fyrir mig að gera næsta vetur, eða hvort hann ætli bara að spyrja hvernig hafi gengið í prófunum á Íslandi. Það kemur allt í ljós. Svo var Bobbý að segja mér í gær að hann kemur líklega 26. eða 27. maí (í seinasta lagi) til Köben, og verður í fríi fram yfir útskriftina mína. Þannig að hann getur hitt mömmu og pabba meðan þau eru hér, og getur farið með mér til Íslands í útskriftina...JEIJ! En jæja ég ætla aðeins út að rölta. Hilsen Hulda p.s. gleymdi að segja að fyrsta einkunn er komin, og það er 9. Mín er að sjálfsögðu mjög stolt af sjálfri sér! Vona að þetta sé vísir á hvernig hinar verða, en ekki bara góð byrjun:) |
| mamma May 10, 2008 03:13 PM PDT Til hamingju með einkunina þetta er glæsilegt. Gaman líka að vita að þið verðið bæði heima þegar við komum út til ykkar, vona bara að þú klárir ekki alla sólina áður en við komum :)............ | ||
| Leave a Comment: |