Entry: Komin til Kaupmannahafnar May 7, 2008



Ég er komin aftur til Kaupmannahafnar og hér er æðislegt veður....ummmm... það er svo heitt á svölunum núna að ég varð að koma inn í smá stund og ákvað að deila þessu með ykkur á meðan:)
En annars var ég hálf fúl í gær. Ég brunaði auðvitað frá Akureyri nokkrum tímum eftir seinasta próf og stoppaði ekkert í Reykjavík og beint út til Danmerkur til að geta mætt í vinnu í dag. Ég sendi skólastjóranum e-mail á mánudag til að staðfesta komu mína, en hef enn ekki fengið neitt svar frá honum. Nemandi minn sagði mér hins vegar í gær að hún væri að fara í samræmt próf í dönsku á morgun og því myndi hún ekki mæta í skólann í dag heldur. Ég á ss ekki að byrja að kenna fyrr en á þriðjudaginn í næstu viku, svo allur þessi hasar við að koma mér út og sleppa að hitta SVO MARGA var til einskis. En ég á alla vega frí í sólinni hér og verð vonandi komin með ágætis lit þegar ég kem heim að útskrifast:)

Ég er samt að fara í viðtal hjá dönskuskólanum á morgun, og er dauðskelkuð þar sem að ég tala þá enga dönsku fyrr en ég fer þangað, fyrst ég þarf ekki að mæta í vinnuna í dag og á morgun...það er eiginlega nauðsynlegt til að koma mér aftur inn í hana almennilega. En ég sit bara heima og reyni að hugsa á dönsku og lesa danskar heimasíður og svona. Var meira að segja að hugsa um að blogga á dönsku, en ég veit ekki hversu margir hefðu skilið það (líklegast enginn Dani alla vega).

En jæja best að sóa ekki fleiri sólarmínútum í tölvunni.

hilsen
Hulda

p.s. ég gleymdi að segja að ég á æðislegan kærasta. Þegar ég kom heim í húsið sem ég skildi eftir eins og svínastíu, var allt hreint og pússað. Á sófaborðinu var ástarbréf sem sagði að ég ætti að njóta þess að vera búin í skólanum og ýta bara á play! Þá var hann búinn að setja disk í dvd-spilarann, litla súkkulaðimola á borðið og poppskál í sófann með popppoka í (eftir að poppa samt). Greinilega með það á hreinu að ég hlakkaði mest til að geta legið í leti án þess að hafa samviskubit:)

   2 comments

Heibba
May 7, 2008   11:54 PM PDT
 
Úff hvað þetta hljómar vel. Ég vildi að ég hefði legið þarna í sóafnaum með þér og tjillað:) Vonandi sjáumst við e-ð í næstu heimsókn á klakann:)
mamma
May 7, 2008   02:25 PM PDT
 
það er um að gera fyrir þig að njóta þess að slappa af eftir allan lesturinn.
Ég verð líka að segja að Bobby fær stórt prik í kladdann hjá mér fyrir að vera svona hugulsamur við þig. Það er einmitt svona hlutir sem gefa lífinu gildi. :)

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments