Entry: Grunnskólakennari April 28, 2008



Það er greinilega gott að vera að útskrifast sem grunnskólakennari núna í vor.

Það er nóg af lausum stöðum (á höfuðborgarsvæðinu alla vega) og launin eru að hækka. Gæti ekki verið betra.

Kannski maður flytji bara heim og sæki um vinnu hér í stað þess að vera að brasast á þessari dönsku. En það er nú reyndar visst ævintýri út af fyrir sig.

En lokaritgerðin fór í prentun í dag. Á morgun er ég að fara í próf í áfanga sem heitir Íslenska-samskipti og þá er bara eftir eitt próf á mánudaginn eftir viku í heimspeki menntunnar. Þá er þetta bara búið og ekkert eftir nema að útskrifast í sætum kjól og vinna sem hálaunaður kennari það sem eftir er ævinnar.

En svona ef þið væruð búin að gleyma því þá á ég afmæli á morgun:)

   6 comments

Hulda
April 30, 2008   01:37 AM PDT
 
TAkk æðislega fyrir afmæliskveðjurnar stelpur mínar:)
Inga Berglind
April 29, 2008   11:56 PM PDT
 
Innilega til hamingju með daginn elsku frænka.....búin að hugsa til þín oft í dag, en aldrei haft tíma til að setjast niður og senda þér kveðju fyrr en núna.
Þar hefuru hana!!!!

Annars risaprófaafmælisknús frá mér :)
Kristín María
April 29, 2008   03:49 PM PDT
 
Til hamingju með daginn!
Hér í DK er sko fáni á öllum strætóum, ætli það sé ekki þér til heiðurs
Thelma
April 29, 2008   09:05 AM PDT
 
Hæ sæta afmælisskvísa :)
Til hamingju með daginn :) Leitt að þú þurfir að vera í prófi í dag en gangi þér bara voða vel í prófinu!
Heyrumst
Thelma
Heibba
April 28, 2008   10:55 PM PDT
 
Til hamingju með daginn á morgun elsku Hulda mín:) og eigðu góðan afmælisdag.
NameAnna María Sig
April 28, 2008   08:04 PM PDT
 
Elsku Hulda Dröfn,
Innilega til hamingju með afmælið á morgun!
Alltaf gaman að fylgjast með síðunni þinni.
Jaá, það er ekki amalegt að vera orðin grunnskólakennari nú í dag. 22% hækkun og ég er en ekki búin að ná bankastarfsmanninum.
Knús, AMS

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments