|
Ég á kannski bara aldrei eftir að venjast því að hann fari í burtu í langan tíma, ég ætlaði að vera ógurlega sterk og hugsa bara um það að ég færi bráðum til Íslands, og að Simon vinur okkar væri að koma í heimsókn um helgina og að ég væri hvort eð er duglegri að læra þegar Bobbý væri ekki heima...en allt kom fyrir ekki! Ég fór að hágráta þegar Bobbý labbaði út um dyrnar. Meiri grenjuskjóðan! En við náðum að gera margt skemmtilegt meðan Bobbý var hérna, þó okkur hafi nú alveg fundist tíminn mega vera lengri. En við náðum alla vega að gera þetta:
En næst þegar við hittumst hérna heima verð ég búin með skólann og Bobbý ekki búinn að vera í neinni ljósavinnu og því ekkert flókið bókhald að sjá um, svo þá getum við gert ennþá meira skemmtilegt. Allir eru því velkomnir í heimsókn eftir 6. maí, bara panta tíma:) |
| Katrín Kolka April 4, 2008 10:02 PM PDT Heyrðu, bróðursonur minn (og reyndar fjölsk hans...) var að fljúga um páskana og kom svona líka lukkulegur heim á klakann með flott "gamaldags" barmmerki! En lýst samt betur á súkkulaðið... já og líka segul-hugmyndina hennar KM. Gætir meira segja fengið mynd af honum í fullri stærð í pilot búningnum... | ||
| Helga Hrönn April 4, 2008 04:34 PM PDT Heyrðu, Valdís sagði mér að þið væruð á leið á Kirk Franklin í haust... ARE YOU NOT KIDDING ME?????? Hvar og hvenær og hvar sástu þetta auglýst og hvar kaupiru miða og vávává..við Linda systir erum sko SJÚKAR okkur langar svo!!!! Endilega sendu mér upplýsingar á facebookið bara | ||
| Kristín María April 3, 2008 11:56 PM PDT Góða ferð til Íslands á morgun! Þú verður að muna að koma með smá innlegg hérna meðan þú ert heima svo við netfíklarnir getum fylgst með ;) Ætli það sé ekki bara best að Bobbý komi með límmiða af sjálfum sér í pilotbúningnum heim...eða jafnvel segul til að setja á ísskápinn meðan hann er að heiman, haha | ||
| Helga Hrönn April 3, 2008 04:24 PM PDT Blessuð Hulda mín. Ekki góður þessi einmannaleiki. Ég þekki þetta aðeins þar sem að minn maður er vinnualki og ég sé hann frá kl.22-22.30 á kvöldin, that´s it! Hvenær á svo næst að koma til landsins? | ||
| hulda April 2, 2008 06:19 PM PDT Katrín ég þori að veðja að barmerki eru orðin óleyfileg í flugfélum, gætu verið notuð sem vopn! Það má alla vega pottþétt ekki taka þau með í gegnum London flugvellina:) En annars er ég nú hrifnust af því þegar Bobbý kemur heim með súkkulaði:) En takk fyrir kommentið sömuleiðis Bjössi! Þú ert velkominn í heimsókn ef þú átt leið um Köben:) | ||
| Bjössi H April 2, 2008 05:30 PM PDT Takk fyrir commentið. Svo þið Bobbý eruð flutt til Köben, spennandi. Hafðu það gott, bið að heilsa eiginmanninum. | ||
| Katrín Kolka April 2, 2008 02:22 PM PDT Hæhæ, hvenig gengur vinnan og danskan? þú ert rosa duglega að vera líka í skólanum með, úff. Gangi þér vel. P.s. kemur Bobbý aldrei með flott dót úr flugvélinni með sér heim? t.d. barmmerki og límmiða? | ||
| Leave a Comment: |