|
Á miðvikudaginn héldum við smá innflutningspartý sem fór mjög friðsamlega og vel fram og var mjög skemmtilegt. Sama dag var 16 ára strákur myrtur í næstu götu af því sem virðist ástæðulausu! Hræðilegur þessi heimur. ![]() ![]() ![]() ![]() Myndin er af Politiken.dk Erlent | mbl.is | 21.3.2008 | 08:30 Blaðburðardrengur myrtur í KaupmannahöfnSextán ára gamall blaðburðardrengur, sem ráðist var á með kylfu að vopni á Amager í Kaupmannahöfn á miðvikudag, lést af sárum sínum á sjúkrahúsi í gærkvöldi. Þrír piltar á aldrinum 15 til 18 ára, hafa verið handteknir grunaðir um árásina. Drengurinn fékk það alvarlega höfuðáverka að ljóst var að hann myndi aldrei komast til meðvitundar þótt læknum tækist að bjarga lífi hans. Piltarnir þrír, sem grunaðir eru um árásina, voru úrskurðaðir í 27 daga gæsluvarðhald í gær. Tveir þeir yngri, 15 og 17 ára bræður, voru vistaðir á unglingaheimili. Ráðist var á blaðburðardrenginn í Polensgade. Sjónarvottar segja, að bíll hafi verið stöðvaður við hliðina á drengnum. Út úr honum stigu tveir menn og spurðu drenginn: Á hvað ertu að glápa? Síðan slógu þeir hann í höfuðið með kylfu og reiðhjólalás. Lögreglan hóf þegar leit að bílnum og ungu mennirnir þrír voru handteknir skömmu síðar í nágrenninu. Þeir hafa allir oft komið við sögu hjá lögreglunni. Hér getið þið séð að þetta er ekki nema 400m frá húsinu okkar, við Metróstöðina okkar. Þið skuluð hugsa ykkar tvisvar um áður en þið komið í heimsókn! |
| Ásta March 23, 2008 02:20 PM PDT úfff þetta er ótrúlegt! ég er hætt við að koma í heimsókn. nei ég held ég komi þó síðar verði:) | ||
| mamma March 23, 2008 11:46 AM PDT ég hef engu við þetta að bæta nema við fórum á bókamarkað og keyptum bók um Kaupmannahöfn til að lesa áður en við komum. Við erum farin að hlakka ótrúlega mikið til að koma til ykkar ............... | ||
| hulda March 22, 2008 10:31 AM PDT Já eins gott:) En núna er það á ykkar ábyrgð. Ég vil að fólk viti að svona hlutir gerist jafnvel í góðu hverfunum í Kaupmannahöfn, svo allt geti gerst hér! :) En við hlökkum líka rosalega til að fá ykkur! Erum strax farin að ákveða hvað við ætlum að sýna ykkur, hvað við getum gert og hvað eigi að borða :) En við sjáumst nú á Íslandi fyrst! | ||
| pabbi March 22, 2008 12:26 AM PDT Við komum nú samt............. | ||
| Leave a Comment: |