...............Velkominn á síðuna mína...............






<< July 2009 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02 03 04
05 06 07 08 09 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31


If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed


May 14, 2008
gaman að kynnast nýju fólki:)

Ég átti ótrúlega góðan dag ein með sjálfri mér þrátt fyrir allt sem á hefur gengið.

Ég ákvað að labba niður í miðbæ (það er samt eiginlega ekkert niður neitt), því ég ætlaði að kaupa 30 daga passa í lestarnar og strætóana. Ég fann hvergi passamynd hér heima sem ég var annars viss um að eiga, svo ég lagði af stað í þeirri von að finna passamyndasjálfsala. Þeir eru víst ekki á hverju strái hér, og ekki í verslunarmiðstöðum eins og algengt er heima á Íslandi. Ég var því mjög glöð þegar ég gekk fram hjá skilti í Christjánshöfn sem sagði Passamyndir á 2 mínútum. Ég skellti mér inn, og mér til mikillar undrunar var þetta sjoppa sem seldi allt. Indverjasjoppa, eins og flestir íslendingar kalla það, en ég komst að því að eigandinn var ekki frá Indlandi heldur einhverju öðru landi sem ég man ekki hvað var. Ég spurði hvort það væri hér sem væri hægt að fara í passamyndatöku og hann brosti sínu breiðasta og dró fram eldgamla myndavél. Dró mig síðan út í horn og bað mig að sitja á stól þar. Ég gat ekki lagað hárið eða séð hvort ég liti allt í lagi út eftir gönguna í hitanum, því það var enginn spegill á svæðinu. Kallinn hafi ógurlega gaman af þessari myndatöku og sagði marga brandara sem ég skildi misvel. En bannaði mér að brosa, snúa höfðinu smá eða gera neitt sem benti til þess að ég væri ekki í fangamyndatöku.
Þegar ég spurði um verðið sagði hann að það kostaði 55 kr, bara fyrir mig (only for you my friend) en vanalega væri það 75. Ég bað ekki um skýringu á þessu kjaraverði sem væri aðeins fyrir mig, en varð dauðhrædd um að hann léti mig borga fyrir 2  myndatökur þegar hann heimtaði að taka aðra mynd, því ég hafði verið með sólgleraugun á höfðinu á fyrri myndinni. Ég sagði að þess þyrfti ekki, þetta væri bara í strætókort, en hann skipaði mér aftur á gamla stólin í skítuga þrönga horninu svo ég hlýddi því bara.
Hann spurði síðan á meðan við biðum hvaðan ég væri. Þegar ég sagði það, sagði hann: Og talar samt svona fullkomna dönsku. Ég hló nú bara því ég get varla talað fullkomna dönsku ef hann heyrir strax að ég sé útlendingur. Reyndar held ég að útlendingar skilji hvern annan betur í þessu landi, alla vega skildi ég allt sem sænsk afgreiðslustúlka í HM var að segja, þó danska konan fyrir framan mig skildi ekkert hvað hún væri að reyna að segja og samt var hún að tala dönsku.
En aftur að vini mínum, hann var alltaf að segja að ég væri að fá góðan díl hjá sér, 8 myndir fyrir 55 kr þegar 4 myndir ættu að kosta 75. Ég brosti bara því það var hann sem bauð dílinn, en ég held að hann hafi verið að vonast til þess að ég borgaði meira. Hann klippti þær síðan allar skakkt í sundur, og vafði þeim inn í rauðan nammi-bréfpoka og rétti mér. Ég þakkaði fyrir og fór.

Svo átti ég góða stund á Strikinu að finna afmælisgjöf handa Ástu systur, og rölta í góða veðrinu áður en ég fór að kaupa passann í strætóana. Þegar ég kom þangað sá ég mér til mikillar ánægju (eða þannig) að helmingurinn af myndunum er ónýtur því þær hafa ekki verið þornaðar nógu vel þegar hann vafði þeim í pappírinn og þær því rauðdoppóttar hér og þar. Ekki það að ég hafi ætlað að nota þær, held ég hafi aldrei á ævinni séð jafn ljótar passamyndir af sjálfri mér. Hárið var að sjálfsögðu úfið, ég glansa öll í framan af hita og svita, lýsingin er bara eitthvað ljót svo ég virðist vera með síða bauga, og já bara ljótar myndir. Og svo hefði ekki þurft allar þessar 8 myndir, því hárið á mér er svo dökkt að sólgleraugun féllu bara inn í það á myndunum.
En það er altlaf gaman að hitta nýtt fólk:)

En annars er mest lítið að frétta af mér hér í Danmörku. Er ekki komin með vinnu næsta vetur, en skólastjórinn sem ég vinn hjá núna sagði að ef e-ð losnaði fengi ég vinnu, og hann gefur mér góð meðmæli ef ég vil sækja um í öðrum skólum. Svo er ég þessa dagana bara mest þakklát fyrir að Ásta systir og stelpur sem voru með henni í bíl sluppu nánast ómeiddar eftir veltu á mánudaginn. Þó veltan sjálf sé eitthvað sem allir hefðu viljað að gerðist ekki, þá er eins og allt hafi farið á besta veg miðað við hvernig fór. Hvoru megin þær fóru út af, hvar þær lentu útaf, allar komnar í belti (sú seinasta bara nýkomin í það) og svona ýmislegt sem hægt er að vera þakklátur fyrir og tognun og mar í raun bara smámunir miðað við hvernig hefði getað farið.

Já og svo er önnur einkunn komin, fyrir Íslensku-samskipti, þar fékk ég líka 9 og var hæðst í áfangannum. Meðaltalið er því ennþá mjög gott fyrir þessa önn, tvær 9 komnar af 5 einkunum. Ekki það að ég sé að monta mig neitt hahhaha;) Ég væri alveg til í að fá svona hátt fyrir lokaritgerðina, en efast um að ég nái því.

En ég ætla að fara að gera eitthvað annað en að hanga í tölvunni.

Hasta la vista
Hilsen



Posted at 19:02 by huldadrofn
Comments (2)  

May 10, 2008
Staðan eins og hún er í dag

Það er ótrúlegt hvað tíminn líður hratt, það er strax komin laugardagur og ég hélt að þessi vika sem ég ætti ekki að gera neitt yrði svo lengi að líða...Ég er búin að gera alveg helling á þessum fáu dögum: t.d. strandferð með Kristínu Maríu í gær (sem er einmitt ástæða þess að ég er ekki svo mikið í sólinni í dag, enda brann ég vel á bringunni, öxlunum og nefinu), fór í lautarferð með Agnesi og Rutger, farið í góðar gönguferðir og línuskautaferðir, en aðallega verið að njóta þess að vera í sólinni.

Svo er ég að fara með fyrstu umsóknina mína í póst á eftir, KM var svo góð að lesa hana yfir hjá mér í gær til að laga málfræði og stafsetningarvillur. Enda lítið dönskusjálfsálit eftir núna, eftir að hafa farið í heimsókn í dönskuskólann.

Ég fékk leiðindakerlingu sem var með stæla bara. Nennti ekkert að tala við mig og skellti mér í skriflegt próf sem ég var ekkert undirbúin að fara í. Munnlega hliðin mín er betri í dönsku, eins og öllum öðrum tungumálum þegar velja þarf um að skrifa án orðabókar eða tala. En kella var ekkert mikið að nenna að tala við mig, braut mig alveg niður með því að svara mér alltaf á ensku, vera mjög óvirkur hlustandi og sitja og strika yfir allt prófið mitt með rauðu meðan ég átti að tala. Þannig að ég stóð mig ekki neitt frábærlega. Hún setti mig svo á byrjenda námskeið fyrir aðeins lengra komna, en ég var ekki mjög sátt. Þá sagði hún bara: Æji það er svo erfitt að finna rétt námskeið fyrir ykkur íslendingana, þú hækkar ábyggilega strax upp um námskeið... Af hverju þá ekki bara að setja mig strax á hærra námskeið og láta mig rembast þar?? ég hefði verið meira til í það. Tími hvorki tímanum mínum né peningum í það að sitja á námskeiði þar sem ég þarf að læra að segja hvað ég heiti!!
en kannski er ég að gera of mikið veður út af þessu. Kannski er þetta námskeið bara alveg fullkomið fyrir mig. Verð bara að sjá.

En svo er skólastjórinn í skólanum sem ég er að vinna í búinn að biðja um viðtal við mig á þriðjudaginn. Ég er voða spennt að vita hvað hann vilji ræða um, hvort það sé boð um áframhaldandi vinnu, tilkynning um að því miður hafi þau ekki meira fyrir mig að gera næsta vetur, eða hvort hann ætli bara að spyrja hvernig hafi gengið í prófunum á Íslandi. Það kemur allt í ljós.

Svo var Bobbý að segja mér í gær að hann kemur líklega 26. eða 27. maí (í seinasta lagi) til Köben, og verður í fríi fram yfir útskriftina mína. Þannig að hann getur hitt mömmu og pabba meðan þau eru hér, og getur farið með mér til Íslands í útskriftina...JEIJ!

En jæja ég ætla aðeins út að rölta.

Hilsen
Hulda

p.s. gleymdi að segja að fyrsta einkunn er komin, og það er 9. Mín er að sjálfsögðu mjög stolt af sjálfri sér! Vona að þetta sé vísir á hvernig hinar verða, en ekki bara góð byrjun:)

Posted at 10:15 by huldadrofn
Comment (1)  

May 7, 2008
Komin til Kaupmannahafnar

Ég er komin aftur til Kaupmannahafnar og hér er æðislegt veður....ummmm... það er svo heitt á svölunum núna að ég varð að koma inn í smá stund og ákvað að deila þessu með ykkur á meðan:)
En annars var ég hálf fúl í gær. Ég brunaði auðvitað frá Akureyri nokkrum tímum eftir seinasta próf og stoppaði ekkert í Reykjavík og beint út til Danmerkur til að geta mætt í vinnu í dag. Ég sendi skólastjóranum e-mail á mánudag til að staðfesta komu mína, en hef enn ekki fengið neitt svar frá honum. Nemandi minn sagði mér hins vegar í gær að hún væri að fara í samræmt próf í dönsku á morgun og því myndi hún ekki mæta í skólann í dag heldur. Ég á ss ekki að byrja að kenna fyrr en á þriðjudaginn í næstu viku, svo allur þessi hasar við að koma mér út og sleppa að hitta SVO MARGA var til einskis. En ég á alla vega frí í sólinni hér og verð vonandi komin með ágætis lit þegar ég kem heim að útskrifast:)

Ég er samt að fara í viðtal hjá dönskuskólanum á morgun, og er dauðskelkuð þar sem að ég tala þá enga dönsku fyrr en ég fer þangað, fyrst ég þarf ekki að mæta í vinnuna í dag og á morgun...það er eiginlega nauðsynlegt til að koma mér aftur inn í hana almennilega. En ég sit bara heima og reyni að hugsa á dönsku og lesa danskar heimasíður og svona. Var meira að segja að hugsa um að blogga á dönsku, en ég veit ekki hversu margir hefðu skilið það (líklegast enginn Dani alla vega).

En jæja best að sóa ekki fleiri sólarmínútum í tölvunni.

hilsen
Hulda

p.s. ég gleymdi að segja að ég á æðislegan kærasta. Þegar ég kom heim í húsið sem ég skildi eftir eins og svínastíu, var allt hreint og pússað. Á sófaborðinu var ástarbréf sem sagði að ég ætti að njóta þess að vera búin í skólanum og ýta bara á play! Þá var hann búinn að setja disk í dvd-spilarann, litla súkkulaðimola á borðið og poppskál í sófann með popppoka í (eftir að poppa samt). Greinilega með það á hreinu að ég hlakkaði mest til að geta legið í leti án þess að hafa samviskubit:)

Posted at 11:09 by huldadrofn
Comments (2)  

May 4, 2008
Til bage til Kobenhavn

Á morgun er seinasta prófið, og ég verð að viðurkenna að stressið er að ná tökum á mér...ekki að það hafi eitthvað látið mig vera seinustu vikurnar, en ég er að verða mjög hrædd við þetta próf! Allt of mikið sem ég kann ekki ennþá! En það verður að hafa það, ég næ vonandi samt 5 sem gefur mér 6,5 í lokaeinkunn og þá er ég bara sátt. Allt fyrir ofan það er bara gaman:)

Svo flýg ég suður annað kvöld eftir prófið og þaðan til Kaupmannahafnar eldsnemma á þriðjudagsmorgun. Síðan er það bara að byrja að vinna aftur á miðvikudagsmorgun og viðtal í dönskuskólanum á fimmtudaginn. Þar verður athugað hversu góð ég er í dönsku svo ég lendi á viðeigandi dönskunámskeiði, svo ég þarf að byrja að æfa mig aftur í dönskunni um leið og ég er búin í prófinu á morgun. Svo ég sýni nú alla vega mínu réttu hlið, en ekki dönskuna sem ég tala þegar ég hef ekki talað dönsku lengi, er þreytt og með hugann við annað. Síðan verð ég nú bara að fara á fullt að sækja um vinnur bæði fyrir næsta vetur og fyrir sumarið. En þó það verði nóg að gera þegar ég kem út verður það nú bara gaman miðað við það sem ég er að gera núna:)

Bobbý fór í sína fyrstu ferð upp á Grænlandsjökul í gær og fannst það voða gaman. Hann fær samt ekki að koma heim fyrr en í fyrsta lagi í lok maí aftur. Mér finnst það hálf fúlt. En hann fær þá vonandi að vera heima meðan mamma og pabbi eru í heimsókn hjá okkur í Köben og verður heima fram yfir útskriftina mína og getur þ.a.l. komið með til Íslands.
En ég þori ekki að setja vonir mínar of hátt (er hægt að segja það?? Put my hopes to high) svo ég verði ekki fyrir vonbrigðum. Það verður gaman þegar hann verður kominn inn á ársplan og við vitum hvenær hann á frí og hvenær hann verður úti, þá verður þetta miklu léttara. Mér finnst svo erfitt að vita aldrei hvenær ég sjái hann næst...

En jæja best ég snúi mér aftur að heimspekinni kæru. Ég hef alla vega ekki efni á því eða tíma til að koma í upptökuprófið í lok mánaðarins svo það er eins gott að ég nái...

Heyrumst næst frá Kongens Köbenhavn
Hilsen


Posted at 14:24 by huldadrofn
Comments (2)  

April 28, 2008
Grunnskólakennari

Það er greinilega gott að vera að útskrifast sem grunnskólakennari núna í vor.

Það er nóg af lausum stöðum (á höfuðborgarsvæðinu alla vega) og launin eru að hækka. Gæti ekki verið betra.

Kannski maður flytji bara heim og sæki um vinnu hér í stað þess að vera að brasast á þessari dönsku. En það er nú reyndar visst ævintýri út af fyrir sig.

En lokaritgerðin fór í prentun í dag. Á morgun er ég að fara í próf í áfanga sem heitir Íslenska-samskipti og þá er bara eftir eitt próf á mánudaginn eftir viku í heimspeki menntunnar. Þá er þetta bara búið og ekkert eftir nema að útskrifast í sætum kjól og vinna sem hálaunaður kennari það sem eftir er ævinnar.

En svona ef þið væruð búin að gleyma því þá á ég afmæli á morgun:)

Posted at 16:07 by huldadrofn
Comments (6)  

April 16, 2008
þreytt

Ég sé fyrir mér í hyllingum að liggja uppi í sófa eða rúmi og gera ekki neitt. Kannski horfa á sjónvarp, lesa góða bók (sem er ekki skólabók) eða jafnvel gera sudoku eða krossgátu.
6. maí....ég get ekki beðið!

En nú er allt búið, nema lokaritgerðin og 2 próf, svo þetta er farið að styttast. Nóg að gera samt, en alla vega meira búið en er eftir, og það er ótrúlega góð tilfinning. Eftir 3 vikur verð ég fulllærð og vonandi á leiðinni að útskrifast í júní. Jeij!!!!



Posted at 10:52 by huldadrofn
Comments (2)  

April 13, 2008
Óvænt brúðkaupsafmælisveisla

Við systkinin og fylgifiskar erum búin að ljúga að mömmu og pabba í heilan mánuð til að fá þau til að taka 12. apríl frá. Í gær þegar kom að þessum degi var mamma viss um að Bobbý væri að koma til landsins og við ætluðum að setja upp hringa og var meira að segja búin að skella í einn kornflexmarens. Dagurinn snérist samt um þau tvö því þau eiga 30 ára brúðkaupsafmæli seinna í mánuðnum, og vorum við búin að plana stífa dagskrá yfir daginn sem átti að enda á stórri veislu þeim til heiðurs. Við byrjuðum á að  borða morgun mat úr bakaríinu við Brúna, og svo var farið í keilu þar sem við leyfðum pabba að vinna svo hann yrði glaður restina af deginum (eða ég vil segja söguna þannig). Svo var það ís í hádeginu, og mömmu sagt að fara í föt sem auðvelt væri að fara úr, en pabba sagt að fara í hlý föt. Pabbi fór svo í útsýnisflug með Sigga Stein, og mamma var send í förðun, og voru þau bæði mjög ánægð með sitt. Held alla vega að hvorugt hefði viljað skipta.
Eftir það voru þau drifin heim og í sparifötin og þeim sagt að við ætluðum fínt út að borða um kvöldið, en fyrst færum við niður á Hjálpræðisher í SingStar. Skýringin á því var að það væri miklu skemmtilegra að gera þetta með alvöru hljóðkerfi og á stórum skjá. Við vorum hins vegar búin að skreyta salinn rosa fallega og gera allt klárt, baka fullt af kökum og fá hálfa ættina til að baka með okkur. Svo stóðu allir tilbúnir með eplasæder í plaststaupum og ætluðu að skála þegar þau kæmu inn tilbúin til að fara í SingStar. Mömmu brá hins vegar svo mikið þegar hún opnaði hurðina og sá að það var fullt af fólki inni að hún skellti henni aftur. Hún fattaði samt á meðan hún var að skella að hún þekkti allt þetta fólk svo hún opnaði hurðina aftur, en þá voru allir hlæjandi í stað þess að skála voða fínt.
Veislan var síðan voða fín,með fullt af góðum veitingum, söngatriðum frá okkur og ræðum frá snilldar ræðumönnum, svo þetta lukkaðist allt rosa vel. En það er alla vega nóg til af kökum ennþá. Svo vildi svo vel til að pabbi gat fengið lánað skautasvellið um kvöldið svo hluti af veislugestunum mætti í krullu um kvöldið. Alveg frábær dagur sem sagt og mamma og pabbi í skýjunum.

En ég ætla að setja inn textana af lögunum sem voru sungin um þau fyrir þá sem hafa á því áhuga:

Lag. Grásleppu Gvendur.

Mamma hún var hálft í hvoru hippi
að heiman þó að sjaldan greyið slippi.
Eitt sinn fór hún ein á rall
í Árskógi var dansi ball.
Og hjá pabba allt þá fór að vonum
hann eitthvað var, að líta eftir konum.

Hann pabbi okkar mömmu þarna mætti
já, mikið skeður oft í fyrsta þætti.
Út á gólfið óðu þar
þá urðu miklar sviptingar.
En ekki fundu alltaf réttu sporin
eins og litlu, kálfarnir á vorin.

Hann pabbi fór í polkanum í splitti
prúðbúinn með barta oní mitti.
Og í  buxum útvíðum
af útsölu hjá Sigga Gumm.
Og  skálmarnar þær urðu eins og poki
hann aðeins minnt´á,  vindmyllu í roki.

Hún mamma gamla engdist upp og niður
og þá skullu saman hné og kviður.
Ekki mikið af sér dró
örara nú hjartað sló.
Hún í sælu alveg þarna undi
eins og væri stödd, á miðilsfundi.

Þau urðu pínu stöm í lokalagi
líkt og sokkar hvor af sínu tagi.
En síðan lögðu kinn við kinn
kossinn fyrsti datt svo inn.
Ó, það var svo óskaplega gaman
eftir þetta, hafa búið saman.

Já, upp úr þessu byrjuðu að búa
það blessaðist nú alveg, því má trúa.
Ekki mikið var um vörn
það voru fljót að koma börn.
Og það alveg ágætlega gengur
í upphafi þá fæddist,  lítill drengur.

Hann Siggi bróðir sáralítið segir
svo kom  Hulda, sem að aldrei þegir.
Á Valdísi út og inn
alltaf gengur munnurinn.
Hún Ásta þekkir ekki undirgefni
sú eina sem að talar,  upp úr svefni.

Pabbi og mamma  máttu mikið vinna
því mikið þurfti börnunum að sinna.
Og fljótlega þau fundu þar
hvað frekar voru systurnar.
Og sparnaðinn þau snemma máttu meta
því mikið þurftu, krakkarnir að éta.

Þau handlaginn í eðli sínu eru
og að smíðum fljótlega þau snéru.
En ég bara ekki skil
hvað ótal margt þau búa til.
Og um það eru sagðar margar sögur
hvað systkinin, þau eru líka fögur.

En mamma og pabbi  áttu oft í brasi
er unga fólkið vaxa tók úr grasi.
Keyra þurfti út um allt
oft var hríð og líka kalt.
Þá Siggi stundum sat og lét sig dreyma
en systurnar, þær voru sjaldan heima.

Nú gömlu hjónin eldast ofurlítið
já,  okkur finnst það vera pínu skrýtið.
Á útlitinu allvel sér
að æskan burtu farin er.
Af hrukkum eru heltekin í framan
hugsið ykkur, hvað þetta er gaman.
 

Og alla daga eru þau að spara
því aurarnir í krakkagreyin fara.
En ef þau taka eitthvert frí
þau  æða suðr´ á Kanarí.
Þar segjast borða svakastóra krabba
og sólin skín, á höfuðið á pabba.

Bráðum verða  þau  svo amma og afi
á því er ei nokkur minnsti vafi.
Það gæti orðið gaman hér
er gömlu hjónin sleppa sér.
Þá amma gamla allt mun á sig leggja
og afi  gamli, byrjar þá að hneggja.
 

Já, það er ljúft að láta sig nú dreyma
hvað lífið það var gott, hjá ykkur heima.
Í guðs ótta og góðum sið
gekk nú jafnan uppeldið.
En vissulega var þá önnur öldin
við oftast lásum,  bænirnar á kvöldin.

Hamingjan hún hossa ykkur megi
hér á þessum yndislega degi.
Þó að margt sé ykkur að
við ætlum ekki að ræða það.
Að endingu við ætlum bara að þakka
hvað eignuðust þið,  dásamlega krakka.


Þetta samdi að sjálfsögðu Pálmi frændi, enda orðin hefð fyrir því að hafa samband við hann þegar mikið liggur við:)

Svo er hitt lagið við mama mía með ABBA, því mamma var mikill aðdáandi sem unglingur.

Næstum því eru liðin þrjátíu ár
Síðan þau voru með jafnsítt hár
Pabbi með skegg
Mamma mjó sem skaft
Borðuðu egg
Og drukku saft
Á Eyrinni
Eða pylsu úr Leirunni

Þau voru hipp og kúl og ótrúlega sæl
Í útvíðum og blómakjól með hippa stæl

Oúoó
Svana og Jón
Eru hörkuhjón
Þrjátíu ár, eru voða mikið
Svana og Jón eru hörkuhjón
Jahá vel af sér vikið

Amma vildi ei trúa
Er þau fóru'að búa
Að pabbi myndi giftast mömmu

Svana og Jón
Eru hörkuhjón
Þrjátíu ár, eru voða mikið

Næstum því eru liðin þrjátíu ár...

 
Oúoh
Svana og Jón
Eru hörkuhjón
Þrjátíu ár, eru voða mikið
Svana og Jón eru hörkuhjón
Jahá vel af sér vikið

Þau hafa elst vel en mikið
Gráu hárin og spikið
Eiga eftir að koma seinna

Svana og Jón (x2)

Góð eru hvort við annað
Og það hafa sannað
Að ástin lifir ævinlega

Svana og Jón
Eru hörkuhjón
Þrjátíu ár, eru voða mikið


Posted at 10:30 by huldadrofn
Make a comment  

April 9, 2008
Myndir

Bobbý var að setja inn nokkrar myndir frá Köben:

 

Njótið vel

 

 


Posted at 16:23 by huldadrofn
Comments (2)  

March 28, 2008
Bobbý farinn:(

Bobbý fór til Grænlands í morgun þrátt fyrir bænir mínar og óskir um það að fluginu yrði aflýst svo hann yrði heima fram á mánudag. Maður fær víst ekki allt sem maður vill.
Ég á kannski bara aldrei eftir að venjast því að hann fari í burtu í langan tíma, ég ætlaði að vera ógurlega sterk og hugsa bara um það að ég færi bráðum til Íslands, og að Simon vinur okkar væri að koma í heimsókn um helgina og að ég væri hvort eð er duglegri að læra þegar Bobbý væri ekki heima...en allt kom fyrir ekki! Ég fór að hágráta þegar Bobbý labbaði út um dyrnar. Meiri grenjuskjóðan!

En við náðum að gera margt skemmtilegt meðan Bobbý var hérna, þó okkur hafi nú alveg fundist tíminn mega vera lengri. En við náðum alla vega að gera þetta:
  • Keyptum okkur húsgögn út á vísa sem var engin heimild á
  • fórum í afmæli til Kristínar Maríu
  • Héldum matarboð fyrir KM, Pétur, Guðrúnu Fönn, Trausta og Tomma litla fyrir að hafa flutt dótið okkar frá Íslandi
  • Vorum með innflutningspartý
  • fórum í sund, sem var ömurlegt: Ísköld laug, engir heitapottar og sér gufubað fyrir hvort kyn, svo við stoppuðum mjög stutt.
  • Fórum til Salome og Reynis (vinafólk Kristínar og Péturs) í Guitar hero og töpuðum alltaf. Nema þegar við kepptum hvort á móti öðru, þá vann ég:)
  • Fórum í páskamessu hjá Íslenska söfnuðnum
  • spiluðum Oxford Monopoly þar sem ég malaði Bobbý
  • Borðuðum risa páskaegg sem við fengum í innflutningsgjöf frá Guggu og Arnóri (og það kláraðist ekki fyrr en í gær)
  • Borðuðum með Agnesi og Rutger
  • Kúrðum helling uppi í sófa og horfðum á Friends, eða fluttum sjónvarpið inn í herbergi til að geta horft úr fína rafmagnsrúminu okkar.
Við gerðum ábyggilega eitthvað fleira sem var ekki eins skemmtilegt. Eins og að hanga fyrir framan tölvurnar hvort í sínu lagi, ég að reyna að læra og Bobbý að reyna að vinna í bókhaldi...
En næst þegar við hittumst hérna heima verð ég búin með skólann og Bobbý ekki búinn að vera í neinni ljósavinnu og því ekkert flókið bókhald að sjá um, svo þá getum við gert ennþá meira skemmtilegt.

Allir eru því velkomnir í heimsókn eftir 6. maí, bara panta tíma:)


Posted at 15:36 by huldadrofn
Comments (7)  

March 21, 2008
Innflutningspartý og morð

Á miðvikudaginn héldum við smá innflutningspartý sem fór mjög friðsamlega og vel fram og var mjög skemmtilegt. Sama dag var 16 ára strákur myrtur í næstu götu af því sem virðist ástæðulausu! Hræðilegur þessi heimur.



Myndin er af Politiken.dk


Erlent | mbl.is | 21.3.2008 | 08:30

Blaðburðardrengur myrtur í Kaupmannahöfn

Sextán ára gamall blaðburðardrengur, sem ráðist var á með kylfu að vopni á Amager í Kaupmannahöfn á miðvikudag, lést af sárum sínum á sjúkrahúsi í gærkvöldi. Þrír piltar á aldrinum 15 til 18 ára, hafa verið handteknir grunaðir um árásina.

Drengurinn fékk það alvarlega höfuðáverka að ljóst var að hann myndi aldrei komast til meðvitundar þótt læknum tækist að bjarga lífi hans. Piltarnir þrír, sem grunaðir eru um árásina, voru úrskurðaðir í 27 daga gæsluvarðhald í gær. Tveir þeir yngri, 15 og 17 ára bræður, voru vistaðir á unglingaheimili.

Ráðist var á blaðburðardrenginn í Polensgade. Sjónarvottar segja, að bíll hafi verið stöðvaður við hliðina á drengnum. Út úr honum stigu tveir menn og spurðu drenginn: Á hvað ertu að glápa? Síðan slógu þeir hann í höfuðið með kylfu og reiðhjólalás.

Lögreglan hóf þegar leit að bílnum og ungu mennirnir þrír voru handteknir skömmu síðar í nágrenninu. Þeir hafa allir oft komið við sögu hjá lögreglunni.


Hér getið þið séð að þetta er ekki nema 400m frá húsinu okkar, við Metróstöðina okkar. Þið skuluð hugsa ykkar tvisvar um áður en þið komið í heimsókn!


Posted at 21:20 by huldadrofn
Comments (4)  

Previous Page Next Page