...............Velkominn á síðuna mína...............






<< June 2009 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02 03 04 05 06
07 08 09 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30


If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed


July 6, 2008
Ný síða

Ég ákvað að herma eftir Valdísi systur og færa mig yfir á WordPress. Ég er því komin með nýtt blogg þar sem ég get sett inn ótakmarkað af myndum:

slóðin er www.huldadrofn.wordpress.com

Ég er enn að læra á hana og að koma henni í gang. En það má alveg kommenta á hana:)

Heyrumst hinu megin.


Posted at 11:27 by huldadrofn
Make a comment  

June 28, 2008
Peningamálin að komast í góðan farveg

Nú er Huldan glöð!
Ég er búin að fá staðfestingu á að námið mitt sé viðurkennt hér til að ég geti unnið sem leikskólakennari. Þ.a.l. fæ ég laun eins og leikskólakennari, sem eru að ég held eftir verkfallið þeirra, hærri en kennaralaun. Svo það er allt á réttri leið hér í Danaveldi. Byrjunar grunnlaun eru 25 þúsund danskar á mánuði, héldu þær sem eru nýlegast útskrifaðar en ég þori svo sem ekki að fagna ríkidæmi mínu fyrr en ég hef fengið launaseðil.
En svo var ég að fá borgað úr skólanum í Ballerup og launin mín eru búin að hækka þar. Svo ég fékk 193,51 dkk á tímann, sem samsvarar 3200 kr íslenskum miðað við núverandi gengi. Og það er eins og færustu einkakennarar eru að fá á Íslandi. En ég fengi nú ekki þessi laun ef ég væri hjá þeim í fastri vinnu. En ég fékk skrifaða á mig alla dagana sem ég mætti en nemandinn minn ekki, og einn aukadag. Svo ég fékk 17,5 tíma borgaða fyrir 3 tíma kennslu og slatta af ferðum til Ballerup og til baka.

Ekki nóg með þetta allt. Heldur fékk ég tölvupóst um að ég hafi unnið í Toyota lottóinu og eigi hjá þeim bíl og hálfa milljón dollara. Ég man reyndar ekki eftir að hafa tekið þátt í þessu lottói, og Toyota heimasíðan sem þeir benda á er á japönsku svo ég get ekki lesið mér mikið til um þetta lottó. En  þeir segjast hafa dregið úr 2.500.000 e-mailum, og ég hafi unnið verðlaun úr 2. verðflokki. Svo heppnin er með mér:)

Hilsen fra København


Posted at 12:54 by huldadrofn
Comments (2)  

June 25, 2008
Atvinnuleit

Atvinnuleit er erfitt fyrirbæri. Ég er búin að gefast upp. Er bara hætt að leita að kennaravinnu. Ég verð bara á leikskólanum að skipta á kúkableyjum og hugga organdi börn alla vega næsta árið.

Ég fékk í gær loksins viðtal í skóla. Það var í Hellerup skóla, og ég var virkilega farin að hlakka til að fara í viðtalið. Leist vel á skólann út frá heimasíðunni, staðsetningin er betri en flestir aðrir vinnustaðir sem mér hefur staðið til boða, og ég var með miklar væntingar og vonaði innilega að ég fengi vinnuna.

Áður en ég lagði af stað í viðtalið fékk ég svo símtal um að ég þyrfti ekki að mæta, það væri búið að ráða í stöðuna. Þvílík höfnun, þau nenntu ekki einu sinni að ræða við mig áður en þau tækju lokaákvörðun. Kom einhver súperdúper kennari inn til þeirra og var ráðinn á staðnum eða hvað??
Hvert bréf sem segir að maður hafi því miður ekki fengið viðtal, eða að þegar sé búið að ráða í stöðuna, er erfitt. En kannski tek ég þessu allt of persónulega...

Ég á líka ábyggilega eftir að venjast þessu á leikskólanum, og ég ræði launin á morgun, svo vonandi verður það bara gott. Svo er þetta nú ekki slæm æfing áður en ég þarf að sinna mínum eigin börnum:)

En ég er farin að læra undir dönskupróf sem ég er að fara í eftir 3 tíma. Eins gott að standa sig í dönskunni svo ég fái einhvern tímann vinnu.

Hilsen

Posted at 12:28 by huldadrofn
Comment (1)  

June 22, 2008
Gervi meyjarhaft

Í Danmörku geta konur sem telja sig þess þurfa, fengið kvensjúkdómalækni til að koma fyrir gervi meyjarhafti hjá sér fyrir brúðkaupsnóttina. Þetta er gert svo þær geti sýnt blóð í lakinu morguninn eftir, og þar með "sannað" að þær séu hreinar meyjar. Sveitafélögin borga fyrir þessar aðgerðir, þar sem að þær geta verið til þess að koma í veg fyrir ærumorð!

Hér er hægt að lesa fréttina af Politiken.

En ég spyr nú bara, er ekki verið að koma í veg fyrir vandann með pínu undarlegum hætti. Hvernig væri að kenna ærumorðingjunum vestræna siðfræði? Mér finnst allt gott við það að reyna að koma í veg fyrir ærumorð, og leifa stúlkunum sem hingað flytja að lifa vestrænu lífi. En það hlýtur að vera til önnur leið en að koma fyrir gervi meyjarhöftum í löggöngum þessara kvenna...

Posted at 21:41 by huldadrofn
Make a comment  

June 21, 2008
vinnu update

Nýjustu fréttir af vinnu: Ég byrja á leikskólanum á mánudaginn og verð alla vega í sumarafleysingum, en þarf ekki að ákveða með framhaldið fyrr en búið er að finna út hvernig launin verða. S.s. hvað ég fæ mikið af mínu námi metið sem leikskólakennaranám til að vera á sömu launum og leikskólakennarar.
En svo ætla ég líka að reyna að fara að komast að því hvort ég fái e-ð meira í skólanum í Ballerup. Ég var á sumargleði þar í gær með starfsfólkinu og það var svo gaman að mig langar ekki að hætta:)

En annars er ekkert nýtt. Er bara að deyja úr leti þessa dagana og hef verið að stunda tölvuleikinn Luxor stíft síðustu daga, sem bitnar á dönskulærdómi. En ég er einmitt að fara í dönskupróf á mánudag og miðvikudag, og byrja svo næsta námskeið strax í vikunni þar á eftir. En já sjálfsstjórnin er sem sagt enginn og haga ég mér eins og það að klára leikinn sé það mikilvægasta í lífi mínu. Takk mamma og pabbi, ég veit þetta kemur frá ykkur;)

Best að fara að halda áfram, ég frétti nefnilega að pabbi væri kominn lengra en ég í leiknum, og það gengur auðvitað ekki!

hilsen

Posted at 15:29 by huldadrofn
Make a comment  

June 18, 2008
Fru Lærer

Þá er ég loksins orðin kennari. Mjög ánægð með útskriftardaginn og ferðina til Íslands þó ég hefði viljað vera mikið lengur. Við vorum að velta fyrir okkur hvort við ættum að reyna að hitta einhvern í hádegismat á mánudaginn áður en við fórum í flug, en fannst það pínu tæpt svo við slepptum því. Við stoppuðum líka mjög stutt hjá Rakel og Elfari að kíkja á glænýju prinsessuna þeirra. Þegar við vorum svo nánast búin að hlaupa frá Birkiásnum með töskurnar okkar til að ná rútunni kl hálf 1, búin að koma okkur fyrir og tékka hvort við værum ekki örugglega með allt með okkur, föttuðum við að flugið var einum tíma seinna en við héldum. Það var kl hálf 4 en ekki hálf 3. En það gaf okkur alveg auka klukkutíma í fríhöfninni, sem varð til þess að ég fór loksins í sjónmælingu og keypti mér ný gleraugu. Enda kominn tími til, gömlu voru orðin ónýt af rispum, og búið að vera mjög lengi erfitt að nota þau.

Í gær héldum við svo upp á 17. júní með þjóðlegum hætti. Borðuðum upphitaðan ora fiskibúðing úr dós í hádeginu, og mjólkurgraut með slátri í kvöldmatinn. ummmm.
Annars var ég svo þreytt eftir ferðalagið, og eftir að hafa farið full seint að sofa á mánudag miðað við hvað ég vaknaði snemma, svo það varð eitthvað lítið úr deginum hjá okkur. Nema að ég fékk boð í atvinnuviðtal á föstudag, í vinnu sem er svipuð þeirri sem ég var í í Oxford. Ef ég fæ vinnuna verð ég kontakt-persóna fyrir einn eða fleiri vistmann (eða konu) í íbúðasamfélagi fyrir fólk með andleg vandamal. Deildin sem ég verð þá við sér um sjálfsmorðslanganir og að vinna úr misnotkun. Ég er samt alveg á báðum áttum hvort ég eigi að fara aftur út í eitthvað svona. Þetta er ótrúlega gefandi, og ég er góð í svona vinnu, en þetta getur verið svo ótrúlega erfitt andlega suma daga. En ég held að ef mér verði boðin vinna og sæmileg laun taki ég henni.

En svo er Bobbý að fara til Grænlands á morgun:( Mér finnst hann alltaf vera nýkomin eða alveg að fara, og er að breytast í leiðinlegustu manneskju í heimi sem vill bara vera alein með kærastanum sínum heima að kúra. En þetta hlýtur að fara að venjast.
Svo er dönskupróf hjá mér í dag, á mánudaginn og næsta miðvikudag. Og ég sem hélt ég væri hætt að læra!!

En ég ætla að leggjast aftur upp í rúm fyrst nemandi minn ákvað að mæta ekki í dag.

Hasta la pronto!
Hulda

Posted at 06:42 by huldadrofn
Comments (2)  

June 11, 2008
PIRR PIRR PIRR

Ég er pínu súr í dag! Ég spurði nemanda minn í seinustu viku, þar sem hún hefur verið að mæta mjög illa undanfarið, hvort hún ætlaði örugglega að mæta alla þessa viku. Ef hún hefði ekki ætlað að mæta ætlaði ég nefnilega til Íslands á sunnudaginn með Bobbý, en ekki bara á annað kvöld. Ég talaði við hana aftur á mánudaginn og við ákváðum hvað við ætluðum að gera daginn eftir og ég mætti því í gær, örþreytt enda alveg komin úr æfingu við að vakna svona snemma á morgnanna. Gellan mætti þá bara ekki, engin skilaboð til mín eða skólans af hverju, og svo svaraði hún ekki síma. Skólastjórinn var kominn í málið og farinn að ræða við heimilið sem hún býr á, og hún lofaði að mæta í dag og við ætluðum að ræða málin. Ég mætti aftur dauðþreytt í morgun, en stúlkan lét ekki sjá sig. Ég hringdi í tengiliðinn hennar hjá heimilinu og hún kannaði málið, jú hún hafði lagt af stað í skólann í morgunn svo allir héldu að hún væri þar, en hún hafði hvorki mætt í skólann né farið aftur heim, svo enginn veit hvert hún fór. Ég var síðan að fá að vita að hún mætir heldur ekki á morgun, svo ég hefði getað farið til Íslands á sunnudaginn með Bobbý, og núna kostar 15 þúsund að breyta miða til að koma sólahring fyrr, svo ég hef ekki efni á því!
En það verður að hafa það, ég kem til Íslands á morgun, og útskrifast á laugardaginn og fer svo aftur út á mánudaginn.

Svo fæ ég vonandi að heyra eitthvað meira um vinnur í næstu viku. En reyndar á að loka öllum leikskólum í næstu viku ef ekki verður búið að leysa úr kjarabaráttu leikskólakennara, svo ég fæ ekki þá vinnu fyrr en þeir opna aftur í fyrsta lagi:( En skólastjórinn þar sem ég vinn er líka að bíða eftir svörum frá sveitafélaginu hvort hann megi fastráða fleiri við skólann, og þá fæ ég líklega stöðu þar. En hann vissi hvorki hvenær svör bærust eða hver þau yrðu svo hann sagði mér að taka vinnu sem mér byðist þangað til, og svo gæti ég þá bara sagt upp ef mig langaði meira að vinna hjá þeim:)
En svo er ég líka að fara á sumargleði kennara í skólanum í næstu viku, ekki seinna vænna að kynnast liðinu ef ég verð núþegar hætt þegar ég mæti á Sommer frokost.

En jæja það er best að fara að gera eitthvað gáfulegra en að hanga í tölvunni.
Sjáumst heima, eða heyrumst!
Hilsen
Hulda


Posted at 12:17 by huldadrofn
Comment (1)  

June 5, 2008
kannski kominn tími á blogg

Við sitjum hér sveitt fyrir framan tölvurnar að deyja úr hita og getum ekki heldur verið úti vegna sterkrar sólar í hádeginu. Það er bara eins og maður sé í heitu löndunum.
Yfir 20 stiga hiti daglega og steikjandi sól. Ekki slæmt! Ég væri ábyggilega orðin þeldökk ef ég tæki almennilega lit.

En annars er margt búið að gerast síðan ég bloggaði síðast, svo ég held það verði að vera á punktaformi svo einhver nenni að lesa það allt.

  • Við héldum Euro-partý bæði í forkeppninni og aðalkeppninni, Bobbý til mikillar gleði.
  • mamma og pabbi komu svo til okkar 25. maí og voru í viku, og við gerðum ótrúlega margt skemmtilegt. Takk fyrir komuna :)
  • Ég fékk seinustu einkunn, og er búin að ná öllu. Ótrúlega ánægð með sjálfa mig, enda einkunnirnar vonum framar þessa önnina, með hvorki meira né minna en þrjár 9-ur. Alls ekki svo vitlaus stelpan!
  • En ég er enn að leita að kjól til að útskrifast í. Hef ekki fundið neinn sem passar, þar sem kjólar í tískubúðunum virðast vera hannaðir eingöngu fyrir mjóar stelpur með engin brjóst. Það er ekki leið til að bæta sjálfsmatið að fara búð úr búð og komast að því að XL er alls staðar of lítið :(
  • Ég sá geggjað flottan appelsínugulan kjól í glugga þegar við vorum að keyra með mömmu og pabba, og allt var stöðvað og allir stukku út að skoða kjólinn sem var btw mjög flottur. Verðið var hins vegar ekki eins skemmtilegt. 8000 danskar krónur. Fúlt að vera ekki milli!
  • Ég fór í klippingu í gær sem kostaði meira en mánaðarlaunin mín. En það er reyndar margt dýrara en seinustu mánaðarlaun hjá mér, þar sem að ég vann ekki nema 2 daga, því minn yndislegi nemandi sér sér svo sjaldan fært að mæta í skólann.
  • Ég er að fara í atvinnuviðtal á mánudaginn í leikskóla, og vona bara að ég fái vinnuna, og fái laun sem leikskólakennari eða kennari, en ekki sem ófaglærð. (veit nefnilega ekki hvernig það er hér þegar kennarar vinna vinnu leikskóla kennara, því námið liggur ekki eins mikið saman og á íslandi)
  • Bobbý fór á mánudaginn og heimsótti tvö ljósafyrirtæki til að athuga með smá aukavinnu þegar hann kemur heim í löng frí. Hann var beðinn að mæta strax á þriðjudag í smá verkefni. Hann vann síðan allan þriðjudaginn og fram á kvöld og aftur allan miðvikudaginn til kl 6. Alveg eins og ljósavinnan á Íslandi. Verkefni sem eiga að vera hálfur vinnudagur verða 24 tíma vinna. En þegar ég sit heima atvinnulaus i sólbaði er líka eins gott að einhver vinni fyrir okkur!! Duglegur kalllinn!
  • Við fórum í grill í gær til Agnesar og Rutgers vina okkar. Þau trúlofuðu sig um helgina og eru að plana brúðkaup, eins og svo ótrúlega margir aðrir. Við erum boðin í 2 brúðkaup á Íslandi í sumar, en það er ekki víst að við náum að mæta í þau, sem er leiðinlegt.
  • Bobbý fer til Íslands á mánudaginn að vinna í nokkra daga, og ég kem svo til Íslands á fimmtudagskvöldið eftir það og við brunum norður á föstudeginum. Útskriftin mín er svo á laugardeginum, og við förum suður aftur á sunnudagskvöld og út á mánudag. Stutt stopp sem sagt!  En ég verð að sinna þessari litlu vinnu sem ég hef, og dönskunáminu að sjálfsögðu!
En jæja nú ætla ég að fara að pakka í strandtöskuna. Við ætlum að nota fyrri þjóðhátíðardaginn okkar í þessum mánuði til að liggja á ströndinni með ís og hafa það gott. Koma svo heim og baka pönsur og horfa á bíómyndir! Ljúft líf hér í Köben:)

Hafið það gott
Hilsen
Hulda

Posted at 11:49 by huldadrofn
Comments (4)  

May 20, 2008
20. maí 2008

Litla systir mín, já pínu litla systir mín hún Ásta, er orðin 19 ára í dag. Ótrúlega líður tíminn hratt, og voðalega hlýt ég að vera orðin gömul! Mér finnst alla vega ekkert langt síðan ég var að passa hana, og hún leit alveg ótrúlega mikið upp til mín og vildi vera eins og ég. Núna er það að snúast við...held hún hálf vorkenni mér fyrir aukaspikið, hrukkurnar og gráu hárin á meðan ég dauðöfunda hana fyrir að vera svona mikil gella! En það verður að hafa það :)
En þetta verður líka gleðidagur fyrir mig! Bobbý minn er að koma heim og fer ekki út til Grænlands aftur fyrr en eftir tæpan mánuð! JEIJ JEIJ JEIJ! Þvílík hamingja á þessu heimili í dag!

En annars fór ég í dönskuskólann í gær og leiddist pínu meðan hinir nemendurnir voru að glósa selvom, elever og bagved og önnur orð sem ég lærði líklega í 7. bekk. En það var farið vel í nokkur grunn framburðaratriði sem ég hafði aldrei lært, eða man alla vega ekki eftir að hafa lært, og mér fannst ég læra helling af því. Var að lesa upphátt fyrir sjálfa mig áðan (alltaf að æfa framburðinn sko) og fannst mér bara hafa farið fram eftir fyrsta daginn. Enda er ég búin að læra að láta hálfa setningu hljóma sem eitt langt hljóð...

En ég veit ekki alveg hvernig er með þessa vinnu mína, ég er búin að vera 2 vikur í Danmörku í dag, og búin að kenna einn dag, því þegar nemandinn minn er ekki í prófi er hún heima að læra fyrir próf eða heima veik! Verst að vera á tímakaupi núna, og fá þá ekkert borgað. En ég hef þá bara meiri tíma til að baka og gera kósý áður en Bobbý minn mætir í kvöld:)

Hasta la vista



Posted at 09:04 by huldadrofn
Make a comment  

May 17, 2008
-

Nú er loksins allt að gerast.
  • Ég byrja á dönskunámskeiðinu á mánudaginn
  • Ég er búin að sækja um vinnu í 5 skólum, einum leikskóla, og sumar/aukavinnu á veitingastað.
  • Ég er búin að fá staðfestingu frá einum skóla að umsókn sé móttekin, og mail frá veitingastaðnum um að við getum rætt um atvinnuviðtal ef ég vilji hlutastarf.
  • Ég heyrði stelpu í gær tala um að hafa keypt sér hjól á 1000kr svo ég spurði hvar og er á leiðinni þangað að kaupa mér hjól.
  • Ég er búin að fá þriðju einkunn, það var fyrir íslensku og var 8. Nú er það bara heimspekin og lokaritgerðin sem ég á eftir að fá út úr.
  • Bobbý kemur líklega heim í næstu viku.
  • Mamma og pabbi koma í heimsókn eftir viku.
  • Svo er ég bara á fullu að skoða fasteignablöðin þegar ég er ekki í sólbaði eða að sækja um vinnur.

Þannig að eftir ár ættum við að vera bæði í góðri fastri vinnu, í eigin húsnæði og þá á bara eftir að unga út börnum í öll aukaherbergin sem ég vil hafa:)

En ég er farin að kaupa mér hjól.

Hilsen

Posted at 08:06 by huldadrofn
Comment (1)  

Next Page