|
|
 |
 |
June 11, 2008
Ég er pínu súr í dag! Ég spurði nemanda minn í seinustu viku, þar sem hún hefur verið að mæta mjög illa undanfarið, hvort hún ætlaði örugglega að mæta alla þessa viku. Ef hún hefði ekki ætlað að mæta ætlaði ég nefnilega til Íslands á sunnudaginn með Bobbý, en ekki bara á annað kvöld. Ég talaði við hana aftur á mánudaginn og við ákváðum hvað við ætluðum að gera daginn eftir og ég mætti því í gær, örþreytt enda alveg komin úr æfingu við að vakna svona snemma á morgnanna. Gellan mætti þá bara ekki, engin skilaboð til mín eða skólans af hverju, og svo svaraði hún ekki síma. Skólastjórinn var kominn í málið og farinn að ræða við heimilið sem hún býr á, og hún lofaði að mæta í dag og við ætluðum að ræða málin. Ég mætti aftur dauðþreytt í morgun, en stúlkan lét ekki sjá sig. Ég hringdi í tengiliðinn hennar hjá heimilinu og hún kannaði málið, jú hún hafði lagt af stað í skólann í morgunn svo allir héldu að hún væri þar, en hún hafði hvorki mætt í skólann né farið aftur heim, svo enginn veit hvert hún fór. Ég var síðan að fá að vita að hún mætir heldur ekki á morgun, svo ég hefði getað farið til Íslands á sunnudaginn með Bobbý, og núna kostar 15 þúsund að breyta miða til að koma sólahring fyrr, svo ég hef ekki efni á því! En það verður að hafa það, ég kem til Íslands á morgun, og útskrifast á laugardaginn og fer svo aftur út á mánudaginn.
Svo fæ ég vonandi að heyra eitthvað meira um vinnur í næstu viku. En reyndar á að loka öllum leikskólum í næstu viku ef ekki verður búið að leysa úr kjarabaráttu leikskólakennara, svo ég fæ ekki þá vinnu fyrr en þeir opna aftur í fyrsta lagi:( En skólastjórinn þar sem ég vinn er líka að bíða eftir svörum frá sveitafélaginu hvort hann megi fastráða fleiri við skólann, og þá fæ ég líklega stöðu þar. En hann vissi hvorki hvenær svör bærust eða hver þau yrðu svo hann sagði mér að taka vinnu sem mér byðist þangað til, og svo gæti ég þá bara sagt upp ef mig langaði meira að vinna hjá þeim:) En svo er ég líka að fara á sumargleði kennara í skólanum í næstu viku, ekki seinna vænna að kynnast liðinu ef ég verð núþegar hætt þegar ég mæti á Sommer frokost.
En jæja það er best að fara að gera eitthvað gáfulegra en að hanga í tölvunni. Sjáumst heima, eða heyrumst! Hilsen Hulda
Posted at 12:17 by huldadrofn
Permalink
June 5, 2008
kannski kominn tími á blogg
Við sitjum hér sveitt fyrir framan tölvurnar að deyja úr hita og getum ekki heldur verið úti vegna sterkrar sólar í hádeginu. Það er bara eins og maður sé í heitu löndunum. Yfir 20 stiga hiti daglega og steikjandi sól. Ekki slæmt! Ég væri ábyggilega orðin þeldökk ef ég tæki almennilega lit. En annars er margt búið að gerast síðan ég bloggaði síðast, svo ég held það verði að vera á punktaformi svo einhver nenni að lesa það allt. - Við héldum Euro-partý bæði í forkeppninni og aðalkeppninni, Bobbý til mikillar gleði.
- mamma og pabbi komu svo til okkar 25. maí og voru í viku, og við gerðum ótrúlega margt skemmtilegt. Takk fyrir komuna :)
- Ég fékk seinustu einkunn, og er búin að ná öllu. Ótrúlega ánægð með sjálfa mig, enda einkunnirnar vonum framar þessa önnina, með hvorki meira né minna en þrjár 9-ur. Alls ekki svo vitlaus stelpan!
- En ég er enn að leita að kjól til að útskrifast í. Hef ekki fundið neinn sem passar, þar sem kjólar í tískubúðunum virðast vera hannaðir eingöngu fyrir mjóar stelpur með engin brjóst. Það er ekki leið til að bæta sjálfsmatið að fara búð úr búð og komast að því að XL er alls staðar of lítið :(
- Ég sá geggjað flottan appelsínugulan kjól í glugga þegar við vorum að keyra með mömmu og pabba, og allt var stöðvað og allir stukku út að skoða kjólinn sem var btw mjög flottur. Verðið var hins vegar ekki eins skemmtilegt. 8000 danskar krónur. Fúlt að vera ekki milli!
- Ég fór í klippingu í gær sem kostaði meira en mánaðarlaunin mín. En það er reyndar margt dýrara en seinustu mánaðarlaun hjá mér, þar sem að ég vann ekki nema 2 daga, því minn yndislegi nemandi sér sér svo sjaldan fært að mæta í skólann.
- Ég er að fara í atvinnuviðtal á mánudaginn í leikskóla, og vona bara að ég fái vinnuna, og fái laun sem leikskólakennari eða kennari, en ekki sem ófaglærð. (veit nefnilega ekki hvernig það er hér þegar kennarar vinna vinnu leikskóla kennara, því námið liggur ekki eins mikið saman og á íslandi)
- Bobbý fór á mánudaginn og heimsótti tvö ljósafyrirtæki til að athuga með smá aukavinnu þegar hann kemur heim í löng frí. Hann var beðinn að mæta strax á þriðjudag í smá verkefni. Hann vann síðan allan þriðjudaginn og fram á kvöld og aftur allan miðvikudaginn til kl 6. Alveg eins og ljósavinnan á Íslandi. Verkefni sem eiga að vera hálfur vinnudagur verða 24 tíma vinna. En þegar ég sit heima atvinnulaus i sólbaði er líka eins gott að einhver vinni fyrir okkur!! Duglegur kalllinn!
- Við fórum í grill í gær til Agnesar og Rutgers vina okkar. Þau trúlofuðu sig um helgina og eru að plana brúðkaup, eins og svo ótrúlega margir aðrir. Við erum boðin í 2 brúðkaup á Íslandi í sumar, en það er ekki víst að við náum að mæta í þau, sem er leiðinlegt.
- Bobbý fer til Íslands á mánudaginn að vinna í nokkra daga, og ég kem svo til Íslands á fimmtudagskvöldið eftir það og við brunum norður á föstudeginum. Útskriftin mín er svo á laugardeginum, og við förum suður aftur á sunnudagskvöld og út á mánudag. Stutt stopp sem sagt! En ég verð að sinna þessari litlu vinnu sem ég hef, og dönskunáminu að sjálfsögðu!
En jæja nú ætla ég að fara að pakka í strandtöskuna. Við ætlum að nota fyrri þjóðhátíðardaginn okkar í þessum mánuði til að liggja á ströndinni með ís og hafa það gott. Koma svo heim og baka pönsur og horfa á bíómyndir! Ljúft líf hér í Köben:) Hafið það gott Hilsen Hulda
Posted at 11:49 by huldadrofn
Permalink
May 20, 2008
Litla systir mín, já pínu litla systir mín hún Ásta, er orðin 19 ára í dag. Ótrúlega líður tíminn hratt, og voðalega hlýt ég að vera orðin gömul! Mér finnst alla vega ekkert langt síðan ég var að passa hana, og hún leit alveg ótrúlega mikið upp til mín og vildi vera eins og ég. Núna er það að snúast við...held hún hálf vorkenni mér fyrir aukaspikið, hrukkurnar og gráu hárin á meðan ég dauðöfunda hana fyrir að vera svona mikil gella! En það verður að hafa það :) En þetta verður líka gleðidagur fyrir mig! Bobbý minn er að koma heim og fer ekki út til Grænlands aftur fyrr en eftir tæpan mánuð! JEIJ JEIJ JEIJ! Þvílík hamingja á þessu heimili í dag!
En annars fór ég í dönskuskólann í gær og leiddist pínu meðan hinir nemendurnir voru að glósa selvom, elever og bagved og önnur orð sem ég lærði líklega í 7. bekk. En það var farið vel í nokkur grunn framburðaratriði sem ég hafði aldrei lært, eða man alla vega ekki eftir að hafa lært, og mér fannst ég læra helling af því. Var að lesa upphátt fyrir sjálfa mig áðan (alltaf að æfa framburðinn sko) og fannst mér bara hafa farið fram eftir fyrsta daginn. Enda er ég búin að læra að láta hálfa setningu hljóma sem eitt langt hljóð...
En ég veit ekki alveg hvernig er með þessa vinnu mína, ég er búin að vera 2 vikur í Danmörku í dag, og búin að kenna einn dag, því þegar nemandinn minn er ekki í prófi er hún heima að læra fyrir próf eða heima veik! Verst að vera á tímakaupi núna, og fá þá ekkert borgað. En ég hef þá bara meiri tíma til að baka og gera kósý áður en Bobbý minn mætir í kvöld:)
Hasta la vista
Posted at 09:04 by huldadrofn
Permalink
May 17, 2008
Nú er loksins allt að gerast. - Ég byrja á dönskunámskeiðinu á mánudaginn
- Ég er búin að sækja um vinnu í 5 skólum, einum leikskóla, og sumar/aukavinnu á veitingastað.
- Ég er búin að fá staðfestingu frá einum skóla að umsókn sé móttekin, og mail frá veitingastaðnum um að við getum rætt um atvinnuviðtal ef ég vilji hlutastarf.
- Ég heyrði stelpu í gær tala um að hafa keypt sér hjól á 1000kr svo ég spurði hvar og er á leiðinni þangað að kaupa mér hjól.
- Ég er búin að fá þriðju einkunn, það var fyrir íslensku og var 8. Nú er það bara heimspekin og lokaritgerðin sem ég á eftir að fá út úr.
- Bobbý kemur líklega heim í næstu viku.
- Mamma og pabbi koma í heimsókn eftir viku.
- Svo er ég bara á fullu að skoða fasteignablöðin þegar ég er ekki í sólbaði eða að sækja um vinnur.
Þannig að eftir ár ættum við að vera bæði í góðri fastri vinnu, í eigin húsnæði og þá á bara eftir að unga út börnum í öll aukaherbergin sem ég vil hafa:) En ég er farin að kaupa mér hjól. Hilsen
Posted at 08:06 by huldadrofn
Permalink
May 14, 2008
gaman að kynnast nýju fólki:)
Ég átti ótrúlega góðan dag ein með sjálfri mér þrátt fyrir allt sem á hefur gengið.
Ég ákvað að labba niður í miðbæ (það er samt eiginlega ekkert niður neitt), því ég ætlaði að kaupa 30 daga passa í lestarnar og strætóana. Ég fann hvergi passamynd hér heima sem ég var annars viss um að eiga, svo ég lagði af stað í þeirri von að finna passamyndasjálfsala. Þeir eru víst ekki á hverju strái hér, og ekki í verslunarmiðstöðum eins og algengt er heima á Íslandi. Ég var því mjög glöð þegar ég gekk fram hjá skilti í Christjánshöfn sem sagði Passamyndir á 2 mínútum. Ég skellti mér inn, og mér til mikillar undrunar var þetta sjoppa sem seldi allt. Indverjasjoppa, eins og flestir íslendingar kalla það, en ég komst að því að eigandinn var ekki frá Indlandi heldur einhverju öðru landi sem ég man ekki hvað var. Ég spurði hvort það væri hér sem væri hægt að fara í passamyndatöku og hann brosti sínu breiðasta og dró fram eldgamla myndavél. Dró mig síðan út í horn og bað mig að sitja á stól þar. Ég gat ekki lagað hárið eða séð hvort ég liti allt í lagi út eftir gönguna í hitanum, því það var enginn spegill á svæðinu. Kallinn hafi ógurlega gaman af þessari myndatöku og sagði marga brandara sem ég skildi misvel. En bannaði mér að brosa, snúa höfðinu smá eða gera neitt sem benti til þess að ég væri ekki í fangamyndatöku. Þegar ég spurði um verðið sagði hann að það kostaði 55 kr, bara fyrir mig (only for you my friend) en vanalega væri það 75. Ég bað ekki um skýringu á þessu kjaraverði sem væri aðeins fyrir mig, en varð dauðhrædd um að hann léti mig borga fyrir 2 myndatökur þegar hann heimtaði að taka aðra mynd, því ég hafði verið með sólgleraugun á höfðinu á fyrri myndinni. Ég sagði að þess þyrfti ekki, þetta væri bara í strætókort, en hann skipaði mér aftur á gamla stólin í skítuga þrönga horninu svo ég hlýddi því bara. Hann spurði síðan á meðan við biðum hvaðan ég væri. Þegar ég sagði það, sagði hann: Og talar samt svona fullkomna dönsku. Ég hló nú bara því ég get varla talað fullkomna dönsku ef hann heyrir strax að ég sé útlendingur. Reyndar held ég að útlendingar skilji hvern annan betur í þessu landi, alla vega skildi ég allt sem sænsk afgreiðslustúlka í HM var að segja, þó danska konan fyrir framan mig skildi ekkert hvað hún væri að reyna að segja og samt var hún að tala dönsku. En aftur að vini mínum, hann var alltaf að segja að ég væri að fá góðan díl hjá sér, 8 myndir fyrir 55 kr þegar 4 myndir ættu að kosta 75. Ég brosti bara því það var hann sem bauð dílinn, en ég held að hann hafi verið að vonast til þess að ég borgaði meira. Hann klippti þær síðan allar skakkt í sundur, og vafði þeim inn í rauðan nammi-bréfpoka og rétti mér. Ég þakkaði fyrir og fór.
Svo átti ég góða stund á Strikinu að finna afmælisgjöf handa Ástu systur, og rölta í góða veðrinu áður en ég fór að kaupa passann í strætóana. Þegar ég kom þangað sá ég mér til mikillar ánægju (eða þannig) að helmingurinn af myndunum er ónýtur því þær hafa ekki verið þornaðar nógu vel þegar hann vafði þeim í pappírinn og þær því rauðdoppóttar hér og þar. Ekki það að ég hafi ætlað að nota þær, held ég hafi aldrei á ævinni séð jafn ljótar passamyndir af sjálfri mér. Hárið var að sjálfsögðu úfið, ég glansa öll í framan af hita og svita, lýsingin er bara eitthvað ljót svo ég virðist vera með síða bauga, og já bara ljótar myndir. Og svo hefði ekki þurft allar þessar 8 myndir, því hárið á mér er svo dökkt að sólgleraugun féllu bara inn í það á myndunum. En það er altlaf gaman að hitta nýtt fólk:)
En annars er mest lítið að frétta af mér hér í Danmörku. Er ekki komin með vinnu næsta vetur, en skólastjórinn sem ég vinn hjá núna sagði að ef e-ð losnaði fengi ég vinnu, og hann gefur mér góð meðmæli ef ég vil sækja um í öðrum skólum. Svo er ég þessa dagana bara mest þakklát fyrir að Ásta systir og stelpur sem voru með henni í bíl sluppu nánast ómeiddar eftir veltu á mánudaginn. Þó veltan sjálf sé eitthvað sem allir hefðu viljað að gerðist ekki, þá er eins og allt hafi farið á besta veg miðað við hvernig fór. Hvoru megin þær fóru út af, hvar þær lentu útaf, allar komnar í belti (sú seinasta bara nýkomin í það) og svona ýmislegt sem hægt er að vera þakklátur fyrir og tognun og mar í raun bara smámunir miðað við hvernig hefði getað farið.
Já og svo er önnur einkunn komin, fyrir Íslensku-samskipti, þar fékk ég líka 9 og var hæðst í áfangannum. Meðaltalið er því ennþá mjög gott fyrir þessa önn, tvær 9 komnar af 5 einkunum. Ekki það að ég sé að monta mig neitt hahhaha;) Ég væri alveg til í að fá svona hátt fyrir lokaritgerðina, en efast um að ég nái því.
En ég ætla að fara að gera eitthvað annað en að hanga í tölvunni.
Hasta la vista Hilsen
Posted at 19:02 by huldadrofn
Permalink
May 10, 2008
Staðan eins og hún er í dag
Það er ótrúlegt hvað tíminn líður hratt, það er strax komin laugardagur og ég hélt að þessi vika sem ég ætti ekki að gera neitt yrði svo lengi að líða...Ég er búin að gera alveg helling á þessum fáu dögum: t.d. strandferð með Kristínu Maríu í gær (sem er einmitt ástæða þess að ég er ekki svo mikið í sólinni í dag, enda brann ég vel á bringunni, öxlunum og nefinu), fór í lautarferð með Agnesi og Rutger, farið í góðar gönguferðir og línuskautaferðir, en aðallega verið að njóta þess að vera í sólinni.
Svo er ég að fara með fyrstu umsóknina mína í póst á eftir, KM var svo góð að lesa hana yfir hjá mér í gær til að laga málfræði og stafsetningarvillur. Enda lítið dönskusjálfsálit eftir núna, eftir að hafa farið í heimsókn í dönskuskólann.
Ég fékk leiðindakerlingu sem var með stæla bara. Nennti ekkert að tala við mig og skellti mér í skriflegt próf sem ég var ekkert undirbúin að fara í. Munnlega hliðin mín er betri í dönsku, eins og öllum öðrum tungumálum þegar velja þarf um að skrifa án orðabókar eða tala. En kella var ekkert mikið að nenna að tala við mig, braut mig alveg niður með því að svara mér alltaf á ensku, vera mjög óvirkur hlustandi og sitja og strika yfir allt prófið mitt með rauðu meðan ég átti að tala. Þannig að ég stóð mig ekki neitt frábærlega. Hún setti mig svo á byrjenda námskeið fyrir aðeins lengra komna, en ég var ekki mjög sátt. Þá sagði hún bara: Æji það er svo erfitt að finna rétt námskeið fyrir ykkur íslendingana, þú hækkar ábyggilega strax upp um námskeið... Af hverju þá ekki bara að setja mig strax á hærra námskeið og láta mig rembast þar?? ég hefði verið meira til í það. Tími hvorki tímanum mínum né peningum í það að sitja á námskeiði þar sem ég þarf að læra að segja hvað ég heiti!! en kannski er ég að gera of mikið veður út af þessu. Kannski er þetta námskeið bara alveg fullkomið fyrir mig. Verð bara að sjá.
En svo er skólastjórinn í skólanum sem ég er að vinna í búinn að biðja um viðtal við mig á þriðjudaginn. Ég er voða spennt að vita hvað hann vilji ræða um, hvort það sé boð um áframhaldandi vinnu, tilkynning um að því miður hafi þau ekki meira fyrir mig að gera næsta vetur, eða hvort hann ætli bara að spyrja hvernig hafi gengið í prófunum á Íslandi. Það kemur allt í ljós.
Svo var Bobbý að segja mér í gær að hann kemur líklega 26. eða 27. maí (í seinasta lagi) til Köben, og verður í fríi fram yfir útskriftina mína. Þannig að hann getur hitt mömmu og pabba meðan þau eru hér, og getur farið með mér til Íslands í útskriftina...JEIJ!
En jæja ég ætla aðeins út að rölta.
Hilsen Hulda
p.s. gleymdi að segja að fyrsta einkunn er komin, og það er 9. Mín er að sjálfsögðu mjög stolt af sjálfri sér! Vona að þetta sé vísir á hvernig hinar verða, en ekki bara góð byrjun:)
Posted at 10:15 by huldadrofn
Permalink
May 7, 2008
Komin til Kaupmannahafnar
Ég er komin aftur til Kaupmannahafnar og hér er æðislegt veður....ummmm... það er svo heitt á svölunum núna að ég varð að koma inn í smá stund og ákvað að deila þessu með ykkur á meðan:) En annars var ég hálf fúl í gær. Ég brunaði auðvitað frá Akureyri nokkrum tímum eftir seinasta próf og stoppaði ekkert í Reykjavík og beint út til Danmerkur til að geta mætt í vinnu í dag. Ég sendi skólastjóranum e-mail á mánudag til að staðfesta komu mína, en hef enn ekki fengið neitt svar frá honum. Nemandi minn sagði mér hins vegar í gær að hún væri að fara í samræmt próf í dönsku á morgun og því myndi hún ekki mæta í skólann í dag heldur. Ég á ss ekki að byrja að kenna fyrr en á þriðjudaginn í næstu viku, svo allur þessi hasar við að koma mér út og sleppa að hitta SVO MARGA var til einskis. En ég á alla vega frí í sólinni hér og verð vonandi komin með ágætis lit þegar ég kem heim að útskrifast:)
Ég er samt að fara í viðtal hjá dönskuskólanum á morgun, og er dauðskelkuð þar sem að ég tala þá enga dönsku fyrr en ég fer þangað, fyrst ég þarf ekki að mæta í vinnuna í dag og á morgun...það er eiginlega nauðsynlegt til að koma mér aftur inn í hana almennilega. En ég sit bara heima og reyni að hugsa á dönsku og lesa danskar heimasíður og svona. Var meira að segja að hugsa um að blogga á dönsku, en ég veit ekki hversu margir hefðu skilið það (líklegast enginn Dani alla vega).
En jæja best að sóa ekki fleiri sólarmínútum í tölvunni.
hilsen Hulda
p.s. ég gleymdi að segja að ég á æðislegan kærasta. Þegar ég kom heim í húsið sem ég skildi eftir eins og svínastíu, var allt hreint og pússað. Á sófaborðinu var ástarbréf sem sagði að ég ætti að njóta þess að vera búin í skólanum og ýta bara á play! Þá var hann búinn að setja disk í dvd-spilarann, litla súkkulaðimola á borðið og poppskál í sófann með popppoka í (eftir að poppa samt). Greinilega með það á hreinu að ég hlakkaði mest til að geta legið í leti án þess að hafa samviskubit:)
Posted at 11:09 by huldadrofn
Permalink
May 4, 2008
Á morgun er seinasta prófið, og ég verð að viðurkenna að stressið er að ná tökum á mér...ekki að það hafi eitthvað látið mig vera seinustu vikurnar, en ég er að verða mjög hrædd við þetta próf! Allt of mikið sem ég kann ekki ennþá! En það verður að hafa það, ég næ vonandi samt 5 sem gefur mér 6,5 í lokaeinkunn og þá er ég bara sátt. Allt fyrir ofan það er bara gaman:)
Svo flýg ég suður annað kvöld eftir prófið og þaðan til Kaupmannahafnar eldsnemma á þriðjudagsmorgun. Síðan er það bara að byrja að vinna aftur á miðvikudagsmorgun og viðtal í dönskuskólanum á fimmtudaginn. Þar verður athugað hversu góð ég er í dönsku svo ég lendi á viðeigandi dönskunámskeiði, svo ég þarf að byrja að æfa mig aftur í dönskunni um leið og ég er búin í prófinu á morgun. Svo ég sýni nú alla vega mínu réttu hlið, en ekki dönskuna sem ég tala þegar ég hef ekki talað dönsku lengi, er þreytt og með hugann við annað. Síðan verð ég nú bara að fara á fullt að sækja um vinnur bæði fyrir næsta vetur og fyrir sumarið. En þó það verði nóg að gera þegar ég kem út verður það nú bara gaman miðað við það sem ég er að gera núna:)
Bobbý fór í sína fyrstu ferð upp á Grænlandsjökul í gær og fannst það voða gaman. Hann fær samt ekki að koma heim fyrr en í fyrsta lagi í lok maí aftur. Mér finnst það hálf fúlt. En hann fær þá vonandi að vera heima meðan mamma og pabbi eru í heimsókn hjá okkur í Köben og verður heima fram yfir útskriftina mína og getur þ.a.l. komið með til Íslands. En ég þori ekki að setja vonir mínar of hátt (er hægt að segja það?? Put my hopes to high) svo ég verði ekki fyrir vonbrigðum. Það verður gaman þegar hann verður kominn inn á ársplan og við vitum hvenær hann á frí og hvenær hann verður úti, þá verður þetta miklu léttara. Mér finnst svo erfitt að vita aldrei hvenær ég sjái hann næst...
En jæja best ég snúi mér aftur að heimspekinni kæru. Ég hef alla vega ekki efni á því eða tíma til að koma í upptökuprófið í lok mánaðarins svo það er eins gott að ég nái...
Heyrumst næst frá Kongens Köbenhavn Hilsen
Posted at 14:24 by huldadrofn
Permalink
April 28, 2008
Það er greinilega gott að vera að útskrifast sem grunnskólakennari núna í vor. Það er nóg af lausum stöðum (á höfuðborgarsvæðinu alla vega) og launin eru að hækka. Gæti ekki verið betra. Kannski maður flytji bara heim og sæki um vinnu hér í stað þess að vera að brasast á þessari dönsku. En það er nú reyndar visst ævintýri út af fyrir sig. En lokaritgerðin fór í prentun í dag. Á morgun er ég að fara í próf í áfanga sem heitir Íslenska-samskipti og þá er bara eftir eitt próf á mánudaginn eftir viku í heimspeki menntunnar. Þá er þetta bara búið og ekkert eftir nema að útskrifast í sætum kjól og vinna sem hálaunaður kennari það sem eftir er ævinnar. En svona ef þið væruð búin að gleyma því þá á ég afmæli á morgun:)
Posted at 16:07 by huldadrofn
Permalink
April 16, 2008
Ég sé fyrir mér í hyllingum að liggja uppi í sófa eða rúmi og gera ekki neitt. Kannski horfa á sjónvarp, lesa góða bók (sem er ekki skólabók) eða jafnvel gera sudoku eða krossgátu. 6. maí....ég get ekki beðið!
En nú er allt búið, nema lokaritgerðin og 2 próf, svo þetta er farið að styttast. Nóg að gera samt, en alla vega meira búið en er eftir, og það er ótrúlega góð tilfinning. Eftir 3 vikur verð ég fulllærð og vonandi á leiðinni að útskrifast í júní. Jeij!!!!
Posted at 10:52 by huldadrofn
Permalink
|
 |
 |
 |
 |
 |
 |
|
|