kannski kominn tími á blogg
Við sitjum hér sveitt fyrir framan tölvurnar að deyja úr hita og getum ekki heldur verið úti vegna sterkrar sólar í hádeginu. Það er bara eins og maður sé í heitu löndunum.
Yfir 20 stiga hiti daglega og steikjandi sól. Ekki slæmt! Ég væri ábyggilega orðin þeldökk ef ég tæki almennilega lit.
En annars er margt búið að gerast síðan ég bloggaði síðast, svo ég held það verði að vera á punktaformi svo einhver nenni að lesa það allt.
- Við héldum Euro-partý bæði í forkeppninni og aðalkeppninni, Bobbý til mikillar gleði.
- mamma og pabbi komu svo til okkar 25. maí og voru í viku, og við gerðum ótrúlega margt skemmtilegt. Takk fyrir komuna :)
- Ég fékk seinustu einkunn, og er búin að ná öllu. Ótrúlega ánægð með sjálfa mig, enda einkunnirnar vonum framar þessa önnina, með hvorki meira né minna en þrjár 9-ur. Alls ekki svo vitlaus stelpan!
- En ég er enn að leita að kjól til að útskrifast í. Hef ekki fundið neinn sem passar, þar sem kjólar í tískubúðunum virðast vera hannaðir eingöngu fyrir mjóar stelpur með engin brjóst. Það er ekki leið til að bæta sjálfsmatið að fara búð úr búð og komast að því að XL er alls staðar of lítið :(
- Ég sá geggjað flottan appelsínugulan kjól í glugga þegar við vorum að keyra með mömmu og pabba, og allt var stöðvað og allir stukku út að skoða kjólinn sem var btw mjög flottur. Verðið var hins vegar ekki eins skemmtilegt. 8000 danskar krónur. Fúlt að vera ekki milli!
- Ég fór í klippingu í gær sem kostaði meira en mánaðarlaunin mín. En það er reyndar margt dýrara en seinustu mánaðarlaun hjá mér, þar sem að ég vann ekki nema 2 daga, því minn yndislegi nemandi sér sér svo sjaldan fært að mæta í skólann.
- Ég er að fara í atvinnuviðtal á mánudaginn í leikskóla, og vona bara að ég fái vinnuna, og fái laun sem leikskólakennari eða kennari, en ekki sem ófaglærð. (veit nefnilega ekki hvernig það er hér þegar kennarar vinna vinnu leikskóla kennara, því námið liggur ekki eins mikið saman og á íslandi)
- Bobbý fór á mánudaginn og heimsótti tvö ljósafyrirtæki til að athuga með smá aukavinnu þegar hann kemur heim í löng frí. Hann var beðinn að mæta strax á þriðjudag í smá verkefni. Hann vann síðan allan þriðjudaginn og fram á kvöld og aftur allan miðvikudaginn til kl 6. Alveg eins og ljósavinnan á Íslandi. Verkefni sem eiga að vera hálfur vinnudagur verða 24 tíma vinna. En þegar ég sit heima atvinnulaus i sólbaði er líka eins gott að einhver vinni fyrir okkur!! Duglegur kalllinn!
- Við fórum í grill í gær til Agnesar og Rutgers vina okkar. Þau trúlofuðu sig um helgina og eru að plana brúðkaup, eins og svo ótrúlega margir aðrir. Við erum boðin í 2 brúðkaup á Íslandi í sumar, en það er ekki víst að við náum að mæta í þau, sem er leiðinlegt.
- Bobbý fer til Íslands á mánudaginn að vinna í nokkra daga, og ég kem svo til Íslands á fimmtudagskvöldið eftir það og við brunum norður á föstudeginum. Útskriftin mín er svo á laugardeginum, og við förum suður aftur á sunnudagskvöld og út á mánudag. Stutt stopp sem sagt! En ég verð að sinna þessari litlu vinnu sem ég hef, og dönskunáminu að sjálfsögðu!
En jæja nú ætla ég að fara að pakka í strandtöskuna. Við ætlum að nota fyrri þjóðhátíðardaginn okkar í þessum mánuði til að liggja á ströndinni með ís og hafa það gott. Koma svo heim og baka pönsur og horfa á bíómyndir! Ljúft líf hér í Köben:)
Hafið það gott
Hilsen
Hulda