Það er greinilega gott að vera að útskrifast sem grunnskólakennari núna í vor.
Það er nóg af lausum stöðum (á höfuðborgarsvæðinu alla vega) og
launin eru að hækka. Gæti ekki verið betra.
Kannski maður flytji bara heim og sæki um vinnu hér í stað þess að vera að brasast á þessari dönsku. En það er nú reyndar visst ævintýri út af fyrir sig.
En lokaritgerðin fór í prentun í dag. Á morgun er ég að fara í próf í áfanga sem heitir
Íslenska-samskipti og þá er bara eftir eitt próf á mánudaginn eftir viku í heimspeki menntunnar. Þá er þetta bara búið og ekkert eftir nema að útskrifast í sætum kjól og vinna sem hálaunaður kennari það sem eftir er ævinnar.
En svona ef þið væruð búin að gleyma því þá á ég afmæli á morgun:)
Posted at 16:07 by huldadrofn
 |  |  |
Hulda April 30, 2008 01:37 AM PDT
TAkk æðislega fyrir afmæliskveðjurnar stelpur mínar:) |
 |

 |  |  |
Inga Berglind April 29, 2008 11:56 PM PDT
Innilega til hamingju með daginn elsku frænka.....búin að hugsa til þín oft í dag, en aldrei haft tíma til að setjast niður og senda þér kveðju fyrr en núna.
Þar hefuru hana!!!!
Annars risaprófaafmælisknús frá mér :) |
 |

 |  |  |
Kristín María April 29, 2008 03:49 PM PDT
Til hamingju með daginn!
Hér í DK er sko fáni á öllum strætóum, ætli það sé ekki þér til heiðurs |
 |

 |  |  |
Thelma April 29, 2008 09:05 AM PDT
Hæ sæta afmælisskvísa :)
Til hamingju með daginn :) Leitt að þú þurfir að vera í prófi í dag en gangi þér bara voða vel í prófinu!
Heyrumst
Thelma |
 |

 |  |  |
Heibba April 28, 2008 10:55 PM PDT
Til hamingju með daginn á morgun elsku Hulda mín:) og eigðu góðan afmælisdag. |
 |

 |  |  |
NameAnna María Sig April 28, 2008 08:04 PM PDT
Elsku Hulda Dröfn,
Innilega til hamingju með afmælið á morgun!
Alltaf gaman að fylgjast með síðunni þinni.
Jaá, það er ekki amalegt að vera orðin grunnskólakennari nú í dag. 22% hækkun og ég er en ekki búin að ná bankastarfsmanninum.
Knús, AMS |
 |