...............Velkominn á síðuna mína...............






<< March 2008 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01
02 03 04 05 06 07 08
09 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31


If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed



March 28, 2008
Bobbý farinn:(

Bobbý fór til Grænlands í morgun þrátt fyrir bænir mínar og óskir um það að fluginu yrði aflýst svo hann yrði heima fram á mánudag. Maður fær víst ekki allt sem maður vill.
Ég á kannski bara aldrei eftir að venjast því að hann fari í burtu í langan tíma, ég ætlaði að vera ógurlega sterk og hugsa bara um það að ég færi bráðum til Íslands, og að Simon vinur okkar væri að koma í heimsókn um helgina og að ég væri hvort eð er duglegri að læra þegar Bobbý væri ekki heima...en allt kom fyrir ekki! Ég fór að hágráta þegar Bobbý labbaði út um dyrnar. Meiri grenjuskjóðan!

En við náðum að gera margt skemmtilegt meðan Bobbý var hérna, þó okkur hafi nú alveg fundist tíminn mega vera lengri. En við náðum alla vega að gera þetta:
  • Keyptum okkur húsgögn út á vísa sem var engin heimild á
  • fórum í afmæli til Kristínar Maríu
  • Héldum matarboð fyrir KM, Pétur, Guðrúnu Fönn, Trausta og Tomma litla fyrir að hafa flutt dótið okkar frá Íslandi
  • Vorum með innflutningspartý
  • fórum í sund, sem var ömurlegt: Ísköld laug, engir heitapottar og sér gufubað fyrir hvort kyn, svo við stoppuðum mjög stutt.
  • Fórum til Salome og Reynis (vinafólk Kristínar og Péturs) í Guitar hero og töpuðum alltaf. Nema þegar við kepptum hvort á móti öðru, þá vann ég:)
  • Fórum í páskamessu hjá Íslenska söfnuðnum
  • spiluðum Oxford Monopoly þar sem ég malaði Bobbý
  • Borðuðum risa páskaegg sem við fengum í innflutningsgjöf frá Guggu og Arnóri (og það kláraðist ekki fyrr en í gær)
  • Borðuðum með Agnesi og Rutger
  • Kúrðum helling uppi í sófa og horfðum á Friends, eða fluttum sjónvarpið inn í herbergi til að geta horft úr fína rafmagnsrúminu okkar.
Við gerðum ábyggilega eitthvað fleira sem var ekki eins skemmtilegt. Eins og að hanga fyrir framan tölvurnar hvort í sínu lagi, ég að reyna að læra og Bobbý að reyna að vinna í bókhaldi...
En næst þegar við hittumst hérna heima verð ég búin með skólann og Bobbý ekki búinn að vera í neinni ljósavinnu og því ekkert flókið bókhald að sjá um, svo þá getum við gert ennþá meira skemmtilegt.

Allir eru því velkomnir í heimsókn eftir 6. maí, bara panta tíma:)


Posted at 15:36 by huldadrofn

Katrín Kolka
April 4, 2008   10:02 PM PDT
 
Heyrðu, bróðursonur minn (og reyndar fjölsk hans...) var að fljúga um páskana og kom svona líka lukkulegur heim á klakann með flott "gamaldags" barmmerki! En lýst samt betur á súkkulaðið... já og líka segul-hugmyndina hennar KM. Gætir meira segja fengið mynd af honum í fullri stærð í pilot búningnum...
Helga Hrönn
April 4, 2008   04:34 PM PDT
 
Heyrðu, Valdís sagði mér að þið væruð á leið á Kirk Franklin í haust...
ARE YOU NOT KIDDING ME??????
Hvar og hvenær og hvar sástu þetta auglýst og hvar kaupiru miða og vávává..við Linda systir erum sko SJÚKAR okkur langar svo!!!!
Endilega sendu mér upplýsingar á facebookið bara
Kristín María
April 3, 2008   11:56 PM PDT
 
Góða ferð til Íslands á morgun!

Þú verður að muna að koma með smá innlegg hérna meðan þú ert heima svo við netfíklarnir getum fylgst með ;)

Ætli það sé ekki bara best að Bobbý komi með límmiða af sjálfum sér í pilotbúningnum heim...eða jafnvel segul til að setja á ísskápinn meðan hann er að heiman, haha
Helga Hrönn
April 3, 2008   04:24 PM PDT
 
Blessuð Hulda mín.
Ekki góður þessi einmannaleiki. Ég þekki þetta aðeins þar sem að minn maður er vinnualki og ég sé hann frá kl.22-22.30 á kvöldin, that´s it!
Hvenær á svo næst að koma til landsins?
hulda
April 2, 2008   06:19 PM PDT
 
Katrín ég þori að veðja að barmerki eru orðin óleyfileg í flugfélum, gætu verið notuð sem vopn! Það má alla vega pottþétt ekki taka þau með í gegnum London flugvellina:)
En annars er ég nú hrifnust af því þegar Bobbý kemur heim með súkkulaði:)

En takk fyrir kommentið sömuleiðis Bjössi! Þú ert velkominn í heimsókn ef þú átt leið um Köben:)
Bjössi H
April 2, 2008   05:30 PM PDT
 
Takk fyrir commentið. Svo þið Bobbý eruð flutt til Köben, spennandi. Hafðu það gott, bið að heilsa eiginmanninum.
Katrín Kolka
April 2, 2008   02:22 PM PDT
 
Hæhæ, hvenig gengur vinnan og danskan? þú ert rosa duglega að vera líka í skólanum með, úff. Gangi þér vel.
P.s. kemur Bobbý aldrei með flott dót úr flugvélinni með sér heim? t.d. barmmerki og límmiða?
 

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments




Previous Entry Home Next Entry