...............Velkominn á síðuna mína...............






<< March 2008 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01
02 03 04 05 06 07 08
09 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31


If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed



March 21, 2008
Innflutningspartý og morð

Á miðvikudaginn héldum við smá innflutningspartý sem fór mjög friðsamlega og vel fram og var mjög skemmtilegt. Sama dag var 16 ára strákur myrtur í næstu götu af því sem virðist ástæðulausu! Hræðilegur þessi heimur.



Myndin er af Politiken.dk


Erlent | mbl.is | 21.3.2008 | 08:30

Blaðburðardrengur myrtur í Kaupmannahöfn

Sextán ára gamall blaðburðardrengur, sem ráðist var á með kylfu að vopni á Amager í Kaupmannahöfn á miðvikudag, lést af sárum sínum á sjúkrahúsi í gærkvöldi. Þrír piltar á aldrinum 15 til 18 ára, hafa verið handteknir grunaðir um árásina.

Drengurinn fékk það alvarlega höfuðáverka að ljóst var að hann myndi aldrei komast til meðvitundar þótt læknum tækist að bjarga lífi hans. Piltarnir þrír, sem grunaðir eru um árásina, voru úrskurðaðir í 27 daga gæsluvarðhald í gær. Tveir þeir yngri, 15 og 17 ára bræður, voru vistaðir á unglingaheimili.

Ráðist var á blaðburðardrenginn í Polensgade. Sjónarvottar segja, að bíll hafi verið stöðvaður við hliðina á drengnum. Út úr honum stigu tveir menn og spurðu drenginn: Á hvað ertu að glápa? Síðan slógu þeir hann í höfuðið með kylfu og reiðhjólalás.

Lögreglan hóf þegar leit að bílnum og ungu mennirnir þrír voru handteknir skömmu síðar í nágrenninu. Þeir hafa allir oft komið við sögu hjá lögreglunni.


Hér getið þið séð að þetta er ekki nema 400m frá húsinu okkar, við Metróstöðina okkar. Þið skuluð hugsa ykkar tvisvar um áður en þið komið í heimsókn!


Posted at 21:20 by huldadrofn

Ásta
March 23, 2008   02:20 PM PDT
 
úfff þetta er ótrúlegt! ég er hætt við að koma í heimsókn. nei ég held ég komi þó síðar verði:)
mamma
March 23, 2008   11:46 AM PDT
 
ég hef engu við þetta að bæta nema við fórum á bókamarkað og keyptum bók um Kaupmannahöfn til að lesa áður en við komum. Við erum farin að hlakka ótrúlega mikið til að koma til ykkar ...............
hulda
March 22, 2008   10:31 AM PDT
 
Já eins gott:) En núna er það á ykkar ábyrgð. Ég vil að fólk viti að svona hlutir gerist jafnvel í góðu hverfunum í Kaupmannahöfn, svo allt geti gerst hér! :) En við hlökkum líka rosalega til að fá ykkur! Erum strax farin að ákveða hvað við ætlum að sýna ykkur, hvað við getum gert og hvað eigi að borða :)
En við sjáumst nú á Íslandi fyrst!
pabbi
March 22, 2008   12:26 AM PDT
 
Við komum nú samt.............
 

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments




Previous Entry Home Next Entry